HÚSASJÁ

Brekkugata 31

01-0101 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

146 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1923

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla

Þvottahús



4 dagar á sölu

sell

65.900.000 kr

452.921 kr/m²

Hvammur Eignamiðlun 466 1600 kaupa@kaupa.is

Brekkugata 31 - Skemmtileg og björt 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í tvíbýli rétt við Miðbæinn á Akureyri - stærð 145,5 m²

Eigin skiptist með eftirtöldum hætti,

Neðri hæð: Forstofa, gangur, baðherbergi, þvottahús, tvö svefnherbergi, fataherbergi og geymsla/herbergi

Efrihæð: Eldhús, stofa og eitt herbergi.

Forstofa: Sér inngangur er í búðin á austurhlið hússins. Flísar á gólfi.

Eldhús: Vönduð sérsmíðuð innrétting frá Tak innréttingum, hvít og hnota. Á gólfi eru hvíttaðar gólffjalir.

Stofa er með gluggum til tveggja átta og lökkuðum fjölum á gólfi.

Herbergi er innaf stofu og er tvöföld frönsk hurð á milli. Þar eru einnig lakkaðar fjalir á gólfum.

Svefnherbergin í íbúðinni eru þrjú en auðvelt er að bæta við fjórða herberginu.  Á efri hæð er herbergi er innaf stofu og er tvöföld frönsk hurð á milli og þar eru lakkaðar gólffjalir.  Tvö herbergi eru á neðri hæðinni auk rúmgóð herbergis sem nýtist í dag sem vinnuherbergi og er með sérinngangi til norðurs.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, sturtu og opnanlegum glugga. Gólfhiti er á baðherbergi.

Þvottahús er með lökkuðu gólfi og þar er bekkur með vask og pláss fyrir bæði þvottavél og þurrkara.

Fataherbergi er með harðparketi á gólfi og góðu skápaplássi.

Geymsla er undir stiga á milli hæða en einnig er ágæt geymslupláss í þvottahúsi.

Annað:

- Árið 2015 var eldhús endunýjað, gólfefni í svefnherbergjum, klætt upp í loft í öllum svefnherbergjum og skipt um ofn í einu þeirra.

- Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að stærstum hluta og ný rafmagnstafla sett upp.

- Geymsluhorn er undir stiga.

- Sér hiti og rafmagn.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Brekkugata 31

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24