HÚSASJÁ

Austurbyggð 16

01-0201 · 600 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

180 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1961

Byggingarár

635 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



239 dagar á sölu

sell

92.500.000 kr

513.034 kr/m²

Einstaklega skemmtileg og vel skipulögð efri sérhæð í tvíbýli á vinsælum stað á brekkunni með stakstæðum bílskúr. Eignin er samtals 180,3 m2. en þar af er bílskúrinn 37,3 m2. Í kjallara er geymsla sem sem hægt er að nýta sem herbergi auk þess er þar sameiginlegt rými.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, búr, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi auk geymslu/svefnherbergi í kjallara og bílskúr.

Forstofa einstaklega falleg innkoma í húsið á forstofugólfi eru flísar.

Stigi upp í íbúð er steyptur, fallegir gluggar bæði í stiga og uppá stigapalli þar eru skápar.

Eldhús er með flísum á gólfi og gólfhita, hvít innrétting, flísar uppá veggi, tengi fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp. Gott pláss fyrir eldhúsborð.  Fallegir gluggar.

Stofa og borðstofa eru með parket á gólfi og bjart rými. Útgengt er á rúmgóðar svalir til suðvesturs úr borðstofu. á svölum er markísa sem getur fylgt. ( í dag nýtist hluti af stofu sem herbergi)

Þvottahús og kalt lítið búr er inn af eldhúsi. Gólfhiti og stæði fyrir þvottavél og þurrkara og tveir opnanlegir gluggar eru í þvottahúsi. Farið er um stiga þaðan nðiur í kjallara.

Baðherbergi þar eru flísar á gólfi og veggjum, sturta með tveimur sturtutækjum, upphengt salerni, Hvít innrétting, handklæðaofn.  Stór gluggi er á baðherbergi

Svefnherbergin eru þrjú, öll með parket á gólfi og eitt þeirra með góðum skápum.

Gangur sem er rúmgóður en þar er gengið í öll svefnherbergin og baðherbergi, þar er laus skápur sem getur fylgt.

Kjallari er með sameiginlegu rými auk þess sem þar er sér geymsla sem hægt er að nýta sem svefnherbergi/vinnuherbergi. Innangengt er úr þvottahúsi íbúðar og einnig er hægt að ganga inn í kjallarann um sameiginlega hurð norðan við hús.

Bílskúr er stakstæður og er norðan við húsið. Þar er bæði inngöngu- og innkeyrsluhurð sem er rafdrifin, lakkað gólf og rafmagn. Þar hefur þak verið endunýjað nýlega.

Annað:

- Þak á bílskúr endurnýjað sumarið 2025. Nýr þakkantur hringinn, einangrunarplötur settar ofan á steypta plötu PVC dúkur soðinn yfir.

- Útidyrahurð endurnýjuð 2021

- Gólfefni að stærstum hluta endurnýjuð 2020

- Baðherbergi endurnýjað 2019

- Steypt bílaplan fyrir framan bílskúr sem tilheyrir eigninni.

- Sameiginleg lóð

- Sameiginlegt geymsluloft aðgengilegt af svölum

- Ljósleiðari tengdur

- Eignin er í einkasölu.

Kort af Austurbyggð 16

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31