HÚSASJÁ

Víðigrund 22

01-0202 · 550 Sauðárkróki

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

66 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

Garður

Svalir



9 dagar á sölu

sell

34.500.000 kr

518.797 kr/m²

Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu tveggja herbergja íbúð á annarri hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsinu við Víðigrund 22, Sauðárkróki.

Séreignin er alls 66,5 fm., þar af sérgeymsla á jarðhæð 4,9 fm.

Fjölbýlishúsið var steypt árið 1978. Lóðarstærð hússins alls er 1981 fm.

Gott útsýni er frá íbúðinni og góðar svalir.

Íbúðin er vel staðsett, þ.e. stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslun ofl.

Íbúðin er að mest öllu uppgerð og í góðu ástandi.

Íbúðin skiptist í eldhús, stofu, baðherbergi, herbergi og hol.

Gengið inn í íbúðina frá stigagangi í parketlagt hol þar sem er skápur.

Í eldhúsi er eikarinnrétting með ljósum borðplötum. Helluborð er frá Siemens. Bakaraofn og vifta er frá Whirlpool.

Stofa er parketlögð. Svalahurð út á góðar svalir að vestan úr stofu.

Á baðherbergi er dúkur á gólfum veggir við baðkar eru flísalagðir og sturta er í karinu. Á baði er þvottavélatengi. Hvít innrétting með dökkri borðplötu við vask.

Eitt parketlagt herbergi með skápum.

Innihurðar hafa verið endurnýjaðar.

Innrétting í eldhúsi, hurðar og skápur í holi er um 6 ára og smíðað af Trésmiðjunni Borg á Sauðárkróki.

Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is

Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali

Kort af Víðigrund 22

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð