HÚSASJÁ

Háahlíð 8

01-0101 · 550 Sauðárkróki

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
68 myndir

299 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1979

Byggingarár

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



194 dagar á sölu

sell

114.900.000 kr

383.768 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-200 / julius@landmark.is kynna:

Glæsilegt 299,4 fm einbýlishús á tveimur hæðum, þar af 59,7 fm bílskúr og aukaíbúð við Háuhlíð 8 á Sauðárkróki. Húsið stendur á 800 fm lóð á eftirsóttum stað við efstu götu hverfisins. Skipulag hússins er gott, á aðalhæðinni eru fjögur svefnherbergi, þar af eitt herbergi inn af forstofu. Alrými með stofu og borðstofu er bjart með mikilli lofthæð, fallegum arni og nýlegri eldhúsinnréttingu. Talsverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni, sjá nánar upplýsingar neðst í lýsingu.

Aukaíbúð er á neðri hæð með sér innangi sem hentar til útleigu. Rýmið er snyrtilegt með nýlegri eldhúsinnréttingu og tveimur innangengum rýmum. Sé neðri íbúð sett í leigu er áfram innangengt aðgengi niður í þvottahús, geymslu og bílskúr.

Innkeyrsla er hellulögð og er snjóbræðsla í plani. Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald. Fallegt útsýni er frá húsinu.

✅ Fjölskylduvæn eign með aukaíbúð

✅ Fjögur svefnherbergi á aðalhæð ásamt stóru alrými

✅ Bílskúr tvöfaldur að dýpt með rafdrifinni bílskúrhurð og gönguhurð

✅ Vel við haldið hús, talsverðar endurbætur á árunum 2008–2025

✅ Fallegur gróinn garður, afgirtur sólpallur og góð staðsetning

Nánari lýsing aðalhæðar

Gengið er upp steyptar tröppur að aðalinngangi hússins. Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi. Herbergi er innaf forstofu sem nýtt er sem skrifstofa, parket á gólfi. Alrými með stofu og borðstofu er stórt og bjart með mikilli lofthæð, harðparket á gólfi, útgengi á sólpall í vestur og þaðan er útgengi í bakgarð. Eldhús er með grárri eldhúsinnréttingu frá HTH með góðu skúffu- og skáparými, innbyggð uppþvottavél og tengi fyrir tvöfaldan ísskáp sem fylgir, eyja með helluborði, skúffum undir. Borðstofa er í framhaldi af eldhúsi, vínilparket á gólfi. Arinn skilur að borðstofu og stofu. Inn af herbergjagangi eru þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi og eru fataskápar í tveimur herbergjum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðinnréttingu, salerni, baðkari og sturtuklefa, handklæðaofn á vegg.

Nánari lýsing neðri hæðar

Út holi alrýmis er stigi niður á neðri hæð og hol, vínilparket á gólfi. Inngangur í þvottahús. Þvottahús er með eldri innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla innan þvottahúss, inngangur í bílskúr. Bílskúr er tvöfaldur að dýpt, málað gólf, hillur og heitt og kalt vatn.

Sér inngangur er aukaíbúð, forstofa með sturtuklefa, innaf er salerni með handlaug, flísar á gólfi. Eldhús er með nýlegri innréttingu, eldavél, gufugleypi yfir og tengi fyrir uppþvottavél sem fylgir. Innaf eldhúsinu er herbergi, vínilparket á gólfi. Úr holi og herbergi inn af eldhúsi er gengið inn í rúmgott alrými aukaíbúðarinnar, harðparket á gólfi.

Endurbætur:

Baðherbergi endurnýjað 2008

Ný eldhúsinnrétting uppi og niðri 2020

Gólfefni í alrými og stiga endurnýjuð 2020–2024

Húsið málað að utan 2020

Skorsteinn steyptur upp 2022

Þakkassi yfirfarinn og lagfærður 2023

Skipt um gluggalista í öllum gluggum 2023

Ný gólfefni á eldhúsi og herbergi niðri 2024

Ný AEG uppþvottavél á efri hæð 2025

Hleðslustöð í bílskúr 2023/2024

Fjölmargt viðhald í gegnum árin

Fasteignamat 2026: 98.950.000 kr.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:

Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / julius@landmark.is

Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is

Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöfSkoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Háahlíð 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu