HÚSASJÁ

Túngata 20A

01-0101 · 580 Siglufirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

96 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1923

Byggingarár

356 m²

Lóð

Sérinngangur

Friðað

Geymsla



45 dagar á sölu

sell

26.500.000 kr

277.487 kr/m²

Fasteignamiðlun kynnir eignina Túngata 20, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0965 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Túngata 20 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0965, birt stærð 95.5 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.

Um er að ræða parhús á einni hæð í miðbæ Siglufjarðar með suðurpalli og garði. Eignin samanstendur af rúmgóðri forstofu, eldhúsi, stofu/borðstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, geymslu og háalofti. Búið er að heilflota gólf eignarinnar og setja gólfhita. Einnig hafa vatnslagnir verið endurnýjaðar og settur nýr brunnur í lóð. Stigi er upp á háaloft sem er mjög rúmgott og miklir möguleikar á að nýta sem svefnherbergi en einnig var salerni á efri hæð sem hefur verið fjarlægt. Skjólgóður pallur er sunnan megin við eignin og garður aftan við eign.

Forstofa: er rúmgóð með flotuðu gólfi og fataskáp.

Eldhús: er með góðu skápaplássi og borðkrók.

Stofa/borðstofa: liggja saman með góðu gluggarými. Opið er inn í eldhús og forstofu.

Svefnherbergi: eru tvö bæði opin í tvo enda. Annað er opið inn í geymslu sem er síðan opin inn á baðherbergi. Hitt er síðan opið inn á baðherbergi og forstofu.

Baðherbergi: er bæði með sturtu og baðkari. Einnig er  ágætt skápapláss, salerni og vaskur. Opnanlegt fag er á baðherbergi.

Geymsla: er með góðu hilluplássi og opnanlegum glugga. Hitaveituinntak og gólfhitalagnir eru inn í geymslu.

Háaloft: er með fellanlegum stiga. Ágætis lofthæð er í miðrými háaloftsins og síðan undir súð. Miklir möguleikar eru á að nýta rýmið á háalofti.

Garður: er grasilagður með hellulögðum palli og timbur skjólavegg sunnan við eignina. Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Túngata 20A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð