Suðurgata 47A
01-0101 · 580 Siglufirði



186 dagar á sölu
36.900.000 kr
263.571 kr/m²
EIGNAVER 460-6060.
Suðurgata 47a, Siglufirði. Íbúð í tvíbýli á tveimur hæðum, samtals 140. m2.
Suðurgata 47a er fjögurra herbergja 140 m2 íbúð en húsið er byggt 1934 og stendur það á góðum útsýnisstað í bænum.
Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi, lítið búr, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, geymslu og óinnréttað rými sem áður var spennistöð.
Nánari lýsing;
Forstofa, flísar á gólfi og fataskápur
Baðherbergi, flísar á gólfi, baðkar, hvít innrétting og gluggi með opnanlegu fagi.
Lítið búr með hillum.
Eldhús, hvít innrétting með beiki, parket á gólfi, ísskápur fylgir með við kaupin.
Svefnherbergi, eitt herbergi er á efri hæð, parket á gólfi og panill á veggjum, skápar.
Stofa, teppi á gólfum, glæsilegt útsýni yfir Siglufjörð úr stofugluggum.
Lúga upp á háaloft er í stofu.
Neðri hæð;
Gengið er niður hringstiga úr stofu og komið niður á flísalagt hol.
Þvottahús, þar er sturtuklefi, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, lakkað gólf. Þvottavél fylgir með við kaupin.
Innaf þvottahúsi er ómúrað rými sem hefur verið notað sem vinnuherbergi/verkstæði.
Tvö svefnherbergi eru á neðri hæð, teppi á gólfum.
Nýleg útihurð er á neðri hæð sem snýr til austurs.
Á neðri hæð er 13,8 m2 rými sem áður var spennistöð en er í dag í eigu húseigenda og er óinnréttað.
Ekki er innangengt í þetta rými.
Að utan er húsið klætt með bárujárnsklæðningu.
Íbúðin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.
Nánari upplýsingar veita:
Tryggvi s: 862-7919 / tryggvi@eignaver.is
Arnar s: 898-7011 / arnar@eignaver.is
Begga s: 845-0671 / begga@eignaver.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

















