Hverfisgata 15
01-0101 · 580 Siglufirði



544 dagar á sölu
44.900.000 kr
478.168 kr/m²
REMAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu afar sjarmerandi hús við Hverfisgötu 15 á Siglufirði. Húsið er byggt árið 1923 en húsið hefur verið mikið endurnýjað bæði að innan og utan sl. ár.
Húsið er á þremur hæðum, tvö herbergi í risi, á miðhæð er stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu, í kjallara eru tvö svefnherbergi, baðherbergi með sturtu, þvottahús og skíða/útifata geymsla. Samkvæmt HMS er birt flatarmál hússins 93,9 fm.
Nánari lýsing:
Miðhæð:
Aðalinngangur er á miðhæðinni.
Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Í samliggjandi rými með eldhúsi. Útgengt út á stóra timburverönd frá stofunni. Undir pallinum, að hluta, er gott geymslurými fyrir útihúsgögn ofl.
Eldhús: Parket á gólfi. Eldhúsinnrétting nýlega endurnýjuð. Ísskápur, uppþvottavél, helluborð og bakaraofn í vinnuhæð.
Baðherbergi: Parket á gólfi. Handlaug, sturtuklefi og salerni.
Ris:
Tvö svefnherbergi: Parket að hluta. Tvö rými. Gluggar í báðum rýmum.
Kjallari:
Tvö svefnherbergi: Gólf flotuð og máluð. Gluggar í báðum rýmum.
Baðherbergi: Sturta, innrétting með handlaug og salerni.
Skíðageymsla: Auka inngangur beint inn í þetta rými.
Þvottahús: Inn af öðru svefnherberginu
Eignin er einstaklega sjarmerandi og frábærlega vel staðsett , í göngufæri við alla þjónustu, beint fyrir ofan Sigló Hótel, innan við 10 mín akstur er á frábært skíðasvæði, bæði fyrir svigskíði og frábærar gönguskíðabrautir í fallegum dal. Frábær 9 holu golfvöllur er þar á sumrin.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














