HÚSASJÁ

Hvanneyrarbraut 29

01-0101 · 580 Siglufirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

240 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1920

Byggingarár

500 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Friðað

Bílastæði

Geymsla

Þvottahús



642 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

245.724 kr/m²

Virðulegt og glæsilegt einbýlishús á þremur hæðum alls 239,7fm. á stórri lóð. Fallegt útsýni er úr húsinu. Húsið er staðsett á besta stað í bænum á góðri lóð og er ansi rúmt um húsið. Ekkert er byggt fyrir framan það og heldur ekki fyrir neðan. Húsið er laust við kaupsamning.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 239,7fm. og þar af er kjallari 93,5 fm, hæðin 93,5 fm og risið 52,7fm.

Nánari lýsing á eign:

Miðhæð hússins, þar er gengið inn í húsið.

Anddyri rúmgott með flísum á gólfi.

Gestasnyrting með glugga og flísum á gólfi,

Eldhús með góðri innréttingu, góð eyja með eldurnaðastöðu, vönduð tæki og parket á gólfi. Útgengt er við hlið eldhúsins út á stóran sólpall með skjóveggjum.

Stofur mjög rúmgóðar og samliggjandi með parketi á gólfi. Áður var hluti annarar stofunnar herbergi og því hægt að bæta aftur við herbergi.

Svefnherbergi mjög rúmgott með parketi á gólfi.

Teppalagður stigi liggur upp í risið.

Risið

Setustofa mjög rúmgóð með teppi á gólfi.

Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnherbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi með sturtuklefa, baðkari, glugga, tvennir vaskar og flísar á gólfi.

Kjallari

Frekar hrár og lofthæðin er skv. teikningu 195 cm. Þar eru þvottahús, geymslur og vinnuaðstaða. Inngöngnuhurð er frá bakhlið hússins.

Viðhald og endurbætur: Húsið hefur alla tíð verið í mjög góðu viðhaldi og ber þess vel merki.

Húsið er innflutt frá Noregi og reyst á SIglufirði árið 1920. Var allt tekið í gegn um 1980 og hefur verið í góðu viðhaldi alla tíð.

Lóð og staðsetnig: Húsið er staðsett á besta stað í bænum á góðri lóð og er ansi rúmt um húsið. Ekkert er byggt fyrir framan það og heldur ekki fyrir neðan. Stutt í alla þjónustu.

Nánari upplýsingar um eignina veita Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Hvanneyrarbraut 29

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu