Hlíðarvegur 35
01-0101 · 580 Siglufirði



24 dagar á sölu
69.900.000 kr
336.058 kr/m²
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hlíðarvegur 35, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0402 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hlíðarvegur 35 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0402, birt stærð 208.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Lýsing
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með miklu útsýni og stórum garði. Eignin samanstendur af rúmgóðu anddyri, eldhúsi, stofu, borðstofu, 5 svefnherbergjum, stórri geymslu, skrifstofu, baðherbergi, þvottahúsi, timbur svölum sunnan við eign og stórum garði með tveim pöllum, austan og vestan megin.
Neðri hæð samanstendur af rúmgóðu anddyri, baðherbergi, þrem svefnherbergjum, stórri geymslu (hægt að nýta sem svefnherbergi) og þvottahúsi/lagnarými. Búið er að breyta skipulagi neðri hæðar þar sem milliveggir voru endurnýjaðir, gólfhiti lagður, heilflotað og epoxymálað gólf.
Efri hæð samanstendur af eldhúsi, samliggjandi stofu og borðstofu, skrifstofu(hægt að nýta sem svefnherbergi), tveimur svefnherbergjum og útgengt út á suðursvalir og pall.
Inngangur er á tveimur stöðum, við bílastæði og framan við hús. Sér stæði er norðan við eignina og leyfi er til staðar fyrir bílskúr.
Endurbætur:
- 2020: Drenað austan og sunnan megin við hún og framkvæmdar steypuviðgerðir á öllu húsinu.
-2021: Jarðvegsskipt sunnan og austan megin í garði, steyptur veggur byggður fyrir pall. Skipt um fráveitulagnir og inntakslagnir. Garður tyrftur.
-2022: Byggður um 60fm timburpallur með viðhaldsfríu bambusefni frá Flexi.
-2025: Timbursvalir byggðar með sama bambusefni og stiga niður á pall.
- Skipulagi neðri hæðar hefur verið breytt, skipt út eldri milliveggjum, gólfhiti lagður, heilflotað og epoxy málað gólf.
Anddyri: er mjög rúmgott með skápum.
Eldhús: er með upprunalegum innréttingum að hluta og kork á gólfi. Gas eldavél er í eldhúsi og gott borðpláss.
Stofa: liggur samhliða borðstofu með parket á gólfi. Frábært útsýni er úr stofu og borðstofu. Skrifstofa er inn af stofu með sérinngang.
Borðstofa: er mjög rúmgóð með útgengt út á timbursvalir. Stigi er frá svölum niður á pall.
Svefnherbergi: eru 5 talsins öll mismunandi stór með fataskáp. Einnig er hægt að breyta skrifstofu og geymslu í svefnherbergi.
Baðherbergi: er mjög rúmgott með flísum á veggjum og gólfi. Hornbaðkar með sturtu, salerni, vask og innréttingu.
Þvottahús/lagnarými: er með hillu- og geymslu plássi. Opnanlegur gluggi er í þvottahúsi.
Garður: er með tveimur heitapottum og pall með bambusdekki. Einnig er grasilagt svæði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir




















