Hafnartún 32
01-0101 · 580 Siglufirði



3 dagar á sölu
45.000.000 kr
405.405 kr/m²
Fasteignamiðlun kynnir eignina Hafnartún 32, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0317 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Hafnartún 32 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0317, birt stærð 111.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@fasteignamidlun.is.
Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum með frábæru útsýni yfir fjörðinn. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu. Neðri hæð skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Efri hæð skiptist í eldhús, samliggjandi stofu og borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi.
Búið er að brjóta vegg á milli eldhús og stofu og opna rýmið. Býslag hefur verið gert fyrir framan eignina sem ætluð er sem köld geymsla.
Forstofa: er rúmgóð með flísum á gólfi.
Svefnherbergi: eru misstór með parket á gólfi. Eitt á efri hæð og tvö á neðri hæð. Útgangur er út í garð frá herbergi efri hæðar.
Baðherbergi neðri hæð: er með flísum á gólfi, salerni, vask og innréttingu. Öndun er á útvegg.
Þvottahús: er með dúk á gólfi og vask.
Geymsla: er inn af þvottahúsi aflokuð með góðu hilluplássi.
Eldhús: er í opnu rými með stofu og borðstofu. Ágætis skápapláss er í eldhúsi og eyja. Parket er á gólfi.
Stofa: er í opnu rými með útgang út á suður svalir.
Baðherbergi efri hæð: er með flísum á gólfi og fibo trezbo plötum í sturtu. Baðkar með sturtu blöndunartækjum, salerni, vaskur og innrétting.
Garður: er aftan við eignina, grasilagður.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














