HÚSASJÁ

Hafnartún 28

01-0101 · 580 Siglufirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
18 myndir

124 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1983

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



479 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

403.395 kr/m²

Fasteignaland fasteignasala kynnir til sölu:

Fallegt 123,7 fm fimm herbergja parhús á tveimur hæðum við Hafnartún á Siglufirði.

Góð staðsetning í suðurenda bæjarins, stutt á skíðin og í útivistina.

Húsið hefur verið endurnýjað að stórum hluta að innan.

Vel skipulagt sérbýli með fallegu útsýni.

Eignin getur verið laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning.

--Fjölskylduhús--

--Fjögur svefnherbergi--

--Endurnýjað að innan--

--Vel um gengið--

--Góð bílastæði--

Fasteignamat 2026:  40.050.000

Lýsing.

Á neðri hæð er forstofa, snyrting, gangur, þrjú svefnherbergi, geymsla og þvottahús.

Á efri hæð er eldhús, stofa, hol, hjónaherbergi og baðherbergi.

Nánari upplýsingar veita

Fasteignaland fasteignasala í s 599-6700 , fasteignaland@fasteignaland.is,

Hörður Sverrisson, s 777-5209, hordur@fasteignaland.is

Nánari lýsing

Forstofa er með flísum á gólfi, gólfhita og þreföldum fataskáp.

Hol á neðri hæð er með nýlegu hvíttuðu harð parketi á gólfi og þaðan liggur teppalagður timburstigi upp á efri hæðina.

Svefnherbergin eru fjögur, þrjú á neðri hæðinni, öll með nýlegu hvíttuðu harð parketi á gólfi, tvöföldum fataskápum og nýlegum hvítum innihurðum.

Svefnherbergi á efri hæðinni er með harðparketi og viðarlitaðri rennihurð. Fyrir framan er hol með sérsmíðuðum fataskápum og lúga upp á loft.

Eldhús, hvíttuð viðar innrétting (2013) með flísum á milli skápa og hvíttað harð parket á gólfi. Stæði er í innréttingu fyrir uppþvottavél og ísskáp. Fyrir framan eldhúsið er góður borðkrókur og úr honum er útgengt á timbur verönd sem snýr í suðvestur.

Stofa er með hvíttuðu harðparketi á gólfi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og þiljum á veggjum, dökkri innréttingu og speglaskáp, upphengdu wc, handklæðaofni, walk-in sturtu með innfelldum tækjum og hurð út á yfirbyggðar svalir. Hiti er í gólfi.

Snyrting er á neðri hæðinni, þar eru flísar á gólfi og þiljur á veggjum, dökk innrétting og upphengt wc. Gólfhiti og handklæðaofn.

Geymsla er með dúk á gólfi. Gengið er í gegnum geymsluna þegar farið er inn í þvottahús.

Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir íbúðina. Þar er dúkur á gólfi, skolvaskur og hvítir skápar.

Köld geymsla er við bakdyrainngang

Gólfhiti er í forstofu, á snyrtingu og á baðherbergi og er honum stýrt í gegnum ofna.

Sér hitaveita og sér rafmagn.

Framkvæmdir

Eignin var mjög mikið endurnýjuð á árunum 2020 - 2021.

Nýtt harðparket, nýjar innihurðar frá Birgisson, sérsmíðaðir fataskápar frá Brúnás.

Í framkvæmdunum 2020-2021 voru baðherbergi og snyrting endurnýjað og lagðar nýjar neysluvatnslagnir í eldhús, baðherbergi og á snyrtingu.

Gler var endurnýjað árið 2022.

Hér er um að ræða góða eign sem vert er að skoða.

Kort af Hafnartún 28

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18