HÚSASJÁ

Hlíðargata 40

01-0101 · 470 Þingeyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

210 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1982

Byggingarár

750 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



19 dagar á sölu

sell

53.000.000 kr

251.423 kr/m²

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Hlíðargata 40, 470 Þingeyri -Stórt og fallegt og töluvert endurnýjað timburhús byggt árið 1982. Húsið skiptist í fimm svefnherbergi, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, gestasalerni og þvottahús/geymslu. Bílskúr er skráður 43,8 m² að stærð.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og gólfhita. Inn af forstofu er salerni.

Gangur/hol er með parketi á gólfi.

Inn af holi er eitt svefnherbergi með spónaparketi á gólfi og fataskáp.

Stór stofa og borðstofa með parketi á gólfi.

Úr stofu er útgengt út á góðan sólpall og út í fallegan bakgarð.

Eldhús var uppgert árið 2008 og er með flísum á gólfi, gólfhita og góðri innréttingu.

Inn af eldhúsi er þvottahús/geymsla.

Svefnálmugangur með parketi á gólfi.

Fjögur svefnherbergi með parketi á gólfum og stór fataskápur í hjónaherbergi og í einu af minni herbergjum.

Baðherbergi var endurnýjað árið 2012 og er með baðkari og sturtu, ágætri innréttingu, flísum á gólfi og veggjum ásamt gólfhita.

Bílskúr er rúmgóður, 43,8 m² að stærð með steyptu gólfi, innréttingu og skápum, tvær bílskúrshurðar, önnur með rafmagnsopnun.

Bílastæði er steypt og stimplað, stæði fyrir um þrjá bíla. Fallegur og vel hirtur garður.Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!

Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook

Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Kort af Hlíðargata 40

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð