Brekkugata 20
01-0101 · 470 Þingeyri



372 dagar á sölu
35.900.000 kr
228.954 kr/m²
LANDMARK kynnir: Mjög gott 4ra herbergja, 156,8 fm einbýli á einni hæð á útsýnisstað á Þingeyri. Húsið hefur fengið þónokkuð viðhald undanfarin ár. Búslóð getur fylgt !
Nýlegar endurbætur að sögn seljanda: Drenað var við húsið árið 2021 og frárennslislagnir endurnýjaður og brunnur uppsettur. Skipt um járn á þaki 2019 og húsið heilmúrað 2023. Tröppur voru steyptar 2023 og múraðar 2024. Rafmagnsinntak frá götu endurnýjað 2023. Þakjárn á bílskúr og bárujárn á göflum sett árið 2023. Ytri timburklæðning endurnýjuð þar sem þurfti á sama tíma. Timburþak var sett á skúrinn árið 2023 á sama tíma og járn var sett. Baklóðin er mjög falleg, hellulögð með fallegri steinahleðslu og grasflöt. Skv eldri sölulýsingu var baðherbergið tekið í gegn 2015 og gluggar lagaðir, skipt um pósta, gler og lista að hluta amk.
Forstofa er með dúk á gólfi og hengi.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og snyrtilegri hvítri innréttingu með borðkrók. Fallegt útsýni yfir Dýrafjörðinn.
Svefnherbergin eru þrjú talsins með harðparketi á gólfi og góðir fataskápar eru í hjónaherbergi.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi, tvískipt í borðstofu og setustofu.
Baðherbergið er flísalagt með hvítri innréttingu, steyptri sturtu með glervegg og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Lítill handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Geymsla er rúmgóð og þaðan er útgengt út á baklóð. Lítið geymslurými þar inn þar sem hægt er að fara upp undir þak.
Bílskúrinn er sérstæður, samtals 36,7 fm og er nýlegt þak á honum og gaflar klæddir með bárujárni. Húsið er kynnt með rafmagnsofnum. Ljósleiðari kominn í hús en ótengdur inn.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir




























