Hafnargata 41
01-0101 · 415 Bolungarvík



688 dagar á sölu
75.000.000 kr
218.531 kr/m²
LANDMARK kynnir fallegt og reisulegt 343,2 fm hús á skemmtilegum stað í Bolungarvík, en húsið er veitinga- og gistihús skv skráningu Þjóðskrár Íslands. Húsið er sögufrægt en það var byggt árið 1902 og þar hefur veitingahús og gisting verið rekið undanfarin ár, s.s. Einarshúsið www.einarshusid.is Árið 2004 var húsið endurnýjað að nær öllu leyti og er mikil bæjarprýði.
Í húsinu eru 8 svefnherbergi, tveggja og þriggja manna. Fallegt útsýni er úr herbergjum til fjalla og inn Ísafjarðardjúp. Herbergin deila baðherbergi en vaskar eru inn á hverju herbergi. Sex herbergi eru á efri hæð en tvö í kjallara. Fimm baðherbergi eru í húsinu, fjögur fyrir gesti og eitt fyrir starfsfólk.
Á fyrstu hæð er veitingasalur og eldhús. Næg bílastæði eru á lóðinni og verönd sunnan meginn við húsið.
Skipting eignar er: 2. hæð er 113,2 fm, 1. hæð er 116,8 fm og kjallari 113,2 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 / freyja@landmark.is
Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 / ss@landmark.is
----------------------------------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
