Aðalstræti 13
01-0101 · 415 Bolungarvík



639 dagar á sölu
120.000.000 kr
88.968 kr/m²
Fasteignasalan Gimli og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Heildarhúseign. Vel staðsett 1.350 fm í Bolungarvík. Í húsinu eru 5-6 íbúðir, verslunarhúsnæði, lager og bakhús með innkeyrslu hurð. Góðar leigutekjur sem auðvelt er að auka til muna.
Nánari lýsing: Húsið er á þremur hæðum ásamt kjallara og bakhúsi.
Á 1.hæð (242,0fm) hússins er snyrtilegt verslunarhúsnæði sem er í útleigu. Steinteppi á gólfi og lageraðstaða er í kjallara undir verslun
Á 2. hæð (240,5 fm) eru þrjár íbúðir, tvær 3ja herbergja íbúðir og ca 35 fm rými þar sem gert er ráð fyrir studioíbúð.
Á 3.hæð (246,5 fm) eru þrjár íbúðir, ein fjögurra herbergja, ein þriggja herbergja og ein tveggja herbergja.
Bakhús (377,8 fm) er á tveimur hæðum og er nýtt sem geymsluhúsnæði, þar er stór innkeyrslu hurð og er það skráð sem verkstæði samkv FMR.
Endurbætur:
Þak yfirfarið og járn endurnýjað 2018 á framhúsi
Þak yfirfarið og járn endurnýjað á bakhúsi 2022,
Búið er að skipta út 70 glerjum.
Húsið var múrviðgert og málað 2021.
Eignin er á besta stað rétt ofan við höfnina í Bolungarvík með möguleika á að bæta við fleiri íbúðum og miklum leigutekjum.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til sb@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















