HÚSASJÁ

Silfurgata 11A

01-0201 · 400 Ísafirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

126 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1905

Byggingarár

238 m²

Lóð

Garður

Svalir

Friðað

Geymsla



37 dagar á sölu

sell

44.900.000 kr

357.200 kr/m²

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is  - Til sölu - Silfurgata 11A Ísafirði - Mjög góð fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum í sjarmerandi húsi á eyrinni.

Íbúðin samanstendur af eldhúsi, stofu og salerni á neðri hæð. Á efri hæð eru þrjú herbergi og baðherbergi. Rúmgóð sérgeymsla í kjallara.

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Sameiginlegur inngangur og stigagangur upp á 2.hæð.

Stigapallur á gangi og útgengt út á sameiginlegar svalir þar, frábært útsýni inn fjörðinn.

Opið eldhús með hvítri innréttingu og tækjum, helluborð, ofn og vifta, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.

Rúmgóð stofa og borðstofa með parketi.

Lítið salerni með flísum á gólfi, vaskur og vaskaskápur. Geymsluskápur inn af salerni.

Stigi niður á 1.hæð norðanmegin og sér útgangur þar.

Efri hæð:

Góður tréstigi á milli hæða.

Hol með fataskáp.

Hjónaherbergi með stórum fataskáp

Stórt svefnherbergi með fjölum á gólfi.

Þriðja herbergið er minna en hægt að nota sem lítið svefnherbergi

Mjög rúmgott baðherbergi með flisum á gólfi, hvít innrétting, upphengt salerni, ný aðgengileg sturta og sturtugler.

Þvottaðstaða á baðherbergi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gott geymsluloft í risi, í holi er hleri með stiga þangað upp.

Í kjallara er stór sér geymsla, um 27 m² að stærð, búið að einangra og steypa nýtt gólf og leggja frárennsli fyrir mögulegt baðherbergi þar.

Árið 2023 var skipt um frárennslislagnir þar og vatnsinntak.

Íbúðin sjálf er skráð 98,6 m² og geymsla 27,1 m² að stærð.

Nýlegt gler í íbúð á suðurhlið, og búið er að kaupa gler fyrir alla glugga.

Húsið er með vel fjármagnaðan hússjóð sem stendur undir framtíðarframkvæmdum.Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!

Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook

Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Kort af Silfurgata 11A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu