Seljalandsvegur 8
01-0101 · 400 Ísafirði



107 dagar á sölu
45.000.000 kr
257.732 kr/m²
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Seljalandsvegur 8 Ísafirði - Vel staðsett einbýlishús á tveimur hæðum - Á jarðhæð er forstofa, vinnuherbergi/geymsla, gangur, þvottahús/kyndiklefi, tvö svefnherbergi, geymsla og salerni. Á efri hæð er forstofugangur, gangur/hol, stofa og borðstofa, eldhús, baðherbergi og svefnherbergi. Eignin þarfnast viðhalds/endurnýjunar.
Nánari lýsing:
Jarðhæð, inngangur á norðurgafli. Forstofa með teppi á gólfi.
Inn af forstofu er stórt herbergi sem nýtist í dag sem geymsla/vinnuherbergi, mögulegt að gera úr því auka svefnherbergi ef þess þarf.
Stigagangur með teppi á gólfi.
Stórt þvottaherbergi/kyndiklefi.
Rúmgott svefnherbergi með fataskáp, engin gólfefni.
Annað ágætt svefnherbergi með fataskáp, engin gólfefni.
Geymsluherbergi með hillum. Undir stiga er lítið salerni, miklar rakaskemmdir þar.
Teppalagður steyptur stigi á milli hæða.
Efri hæð:
Á efri hæð er sérinngangur fyrir ofan hús.
Dúklagður forstofugangur.
Gangur/hol með fatahengi, dúkur á gólfi.
Rúmgóð setustofa og borðstofa í opnu rými, teppi á gólfi, gott útsýni yfir bæinn.
Stórt eldhús með upprunalegri innréttingu og eldavél, dúkflísar á gólfi.
Baðherbergi með baðkari og vaski.
Ágætt svefnherbergi á efri hæð, dúkur á gólfi.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir

















