Hlíðarvegur 32
01-0201 · 400 Ísafirði



183 dagar á sölu
39.900.000 kr
350.000 kr/m²
LANDMARK kynnir: Mjög góð 114 fm, 3ja - 4ra herbergja efri sérhæð með bílskúr á útsýnistað á Ísafirði. Íbúðin er með nýlegt baðherbergi, glugga, gler og svalahurð en að öðru leyti upprunaleg. Skipting íbúðar: Íbúð 64,6 fm, herbergi / geymsla 16,7 fm og bílgeymsla 24,5 fm.
Forstofa, gengið er inn á 1. hæð um sameiginlegan inngang og upp teppalagðan stiga.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og fallegu útsýni. Ný uppsett svalahurð en engar svalir.
Svefnherbergin eru tvö með teppi og dúk á gólfi. Fataskápur í öðru herberginu.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa og fallegri innréttingu.
Eldhúsið er með harðparketi á gólfi og upprunalegri, snyrtilegri innréttingu.
Á jarðhæð / kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla íbúðar / herbergi sem er óinnréttað. Sameiginlegt baðherbergi er á hæðinni sem býður upp á að búið sé í herberginu / geymslunni, þar sem einnig er sérinngangur af baklóð.
Bílskúrinn er með eldri hurð og er með rafmagni en ekki vatnslögnum. Snyrtileg lóð. Húsið er að mestu klætt bárujárni. Ekki er greitt í hússjóð. Sér hiti og rafmagn í íbúð.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
----------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir
















