Hlíðarvegur 1
01-0101 · 400 Ísafirði



9 dagar á sölu
85.000.000 kr
369.084 kr/m²
LANDMARK kynnir: Fallegt og mikið endurnýjað 230 fm einbýlishús á útsýnisstað á Ísafirði. Húsið telur tvær hæðir auk kjallara og býður upp á marga möguleika eins og auka íbúðarrými í kjallara. 6 - 7 svefnherbergi í húsinu Þrír inngangar í húsið. Mjög snyrtileg lóð
*** Síðustu ár hefur húsið verið mikið endurnýjað eins og nýtt miðstöðvakerfi sett í húsið og ofnar endurnýjaðir. Einnig var eftirfararandi endurnýjað: Gólfefni, innihurðar, útihurðar, fataskápar, baðherbergi, eldhús, neysluvatnslagnir og þakjárn. ***
1.hæð:
Forstofa er á 1. hæð þar sem gengið er inn baka til og er hún flísalögð með fatahengi.
Hol er inn af forstofu með parketi á gólfi og útgengt út á svalir, en við svalainnganginn er fatahengi og hægt er að nýta sem sérinngang í húsið.
Svefnherbergin eru þrjú og tvö þeirra mjög rúmgóð. Stór skápar í einu herbergjanna
Baðherbergið er með flísalagt gólf, fallega innréttingu og hornbaðkar.
Stiginn upp á 2. hæð er með harðparketi.
2.hæð:
Svefnherbergi er á hæðinni með harðparketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með steyptri sturtu með glervegg og fallegri innréttingu.
Stofan og borðstofan eru samliggjandi með harðparketi á gólfi og fallegu útsýni.
Eldhúsið er með mjög rúmgóðri innréttingu með nýlegum tækjum og helluborði. Fallegt útsýni úr eldhúsi.
Sérinngangur er norðan megin við húsið. Þar er nýleg hurð og flísar á gólfi.
Kjallari:
Herbergin eru þrjú í kjallaranum og öll nokkuð rúmgóð. Eitt herbergið er nýtt sem geymsla. Harðparket á gólfi.
Flísalögð geymsla með glugga.
Kyndirými er með flísalagt gólf og skolvask.
Þvottahúsið er flísalagt og er nokkuð rúmgott.
Möguleiki er að gera aukaíbúðarrými í kjallara.
Ofan við húsið er verönd með geymsluskúr sem er tvískiptur. Hann er með rafmagni. Lóðin er mjög snyrtileg og vel hirt með lýsingu.
Bílastæði eru bæði sunnan við húsið og einnig ofan við húsið.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
---------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir


































