Hafnarstræti 6
01-0301 · 400 Ísafirði



26 dagar á sölu
77.900.000 kr
468.149 kr/m²
LANDMARK kynnir: Mjög falleg og rúmgóð 4-5 herbergja 142,3 fm íbúð á þriðju og efstu hæð í miðbæ Ísafjarðar. Að auki er rými í risinu ( 24.1 fm) sem er innréttað sem 3ja herbergja íbúð, en rýmið er töluvert undir súð og því mun fleiri fermetrar í gólffleti. Samtals 166,4 fm.
Inngangur er á baklóð upp sameiginlegan stiga með íbúð á 2. hæð.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og eru báðar mjög rúmgóðar með parketi á gólfi. Rennihurð á milli stofa.
Eldhúsið er með snyrtilegri viðarinnréttingu með eldhúseyju með gashelluborði og háfi. Parket á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú og öll rúmgóð með parketi á gólfi. Fataskápur í einu þeirra og fataslá í öðru.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottaaðstaða á sameiginlegum stigapalli framan við íbúð. Þaðan er útgengt út á litlar svalir.
Risloftið er 24,1 fm og er innréttað sem 3ja herbergja íbúð sem er nýlega innréttuð.
Stofan og eldhúsið eru í sameiginlegu rými með parketi á gólfi, fallegri innréttingu og þakgluggum.
Svefnherbergin eru tvö með parketi á gólfi og þakgluggum.
Baðherbergið er flísalagt með steyptri sturtu með glervegg, fallegri innréttingu og handklæðaofni.
Í hverjum eignarhluta er sérhita- og rafmagnsmælir. Ekki er greitt í hússjóð.
--------------------------------------------------------------
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































