Fjarðarstræti 33
01-0101 · 400 Ísafirði



42 dagar á sölu
62.900.000 kr
356.374 kr/m²
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is- kynnir til sölu - Fjarðarstræti 33 Ísafirði - Fallegt og vel staðsett hús á tveimur hæðum auk kjallara.
Á jarðhæð er forstofa, borðstofa, stofa, eldhús, baðherbergi og tvö herbergi.
Á efri hæð eru tvö góð svefnherbergi.
Gott geymslupláss í kjallara. Húsið er sambyggt Mjallargötu 9 Ísafirði.
Komið inn í forstofu með flísum á gólfi, ágætur fataskápur, hiti í gólfi.
Inn af forstofu er lítið svefnherbergi með parketi á gólfi.
Opin borðstofa með harðparketi á gólfi. Samliggjandi rúmgóð stofa einnig með harðparketi á gólfi.
Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, helluborð, ofn og pláss fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Inn af eldhús er stórt herbergi með góðum fataskáp og harðparketi á gólfi.
Baðherberbergi er rúmgott, flísar á gólfi, hiti í gólfi, hvít innrétting og sturtuklefi. Þvottaaðstaða í baðherbergi.
Stigi upp á efri hæð, tvö rúmgóð svefnherbergi þar, harðparket á gólfum herbergjanna.
Annað herbergið er með glugga til suðurs. Hitt herbergið er með glugga til norðurs og með ágætu útsýni út á djúpið.
Kjallari er skráður 30,7 m² að stærð, sérinngangur þar á vesturhlið hússins, lítil geymsla á jarhæð og svo stigi niður í kjallararými sem skiptist niður í þrjú geymslurými.
Góður afgirtur garður og bílastæði.
Framkvæmdasaga:
Vatnslagnir, raflagnir og frárennslislagnir voru endurnýjaðar að sögn fyrri eiganda í kringum 2018-19 ásamt því að sett var nýtt harðparkett og húsið klætt að innan.
Nýtt þak lagt á stofuviðbyggingu ásamt rakasperru 2023.
Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























