Austurvegur 12
04-0201 · 400 Ísafirði



33 dagar á sölu
39.900.000 kr
577.424 kr/m²
Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Austurvegur 12 Ísafirði, íbúð 0201 - Töluvert endurnýjuð og vel staðsett þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli - Íbúðin er með tvö svefnherbergi, forstofugang, eldhús, baðherbergi og stofu. Geymslur í kjallara, sameiginlegt þvotta og þurrkherbergi ásamt hjóla og vagnageymslu.
Nánar lýsing:
Komið inn í hol með harðparketi á gólfi og hita í gólfi.
Tvö svefnherbergi, gott hjónaherbergi með fataskáp.
Annað minna svefnherbergi.
Ágæt stofa með harðparketi á gólfi.
Eldhús með sérsmíðaðri innréttingu frá Inntré, innbyggð uppþvottavél og gott skápapláss.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, handklæðaofn, hvít innrétting og góð sturta. Hiti í gólfi á baði.
Harðparket frá Álfaborg á gólfum nema á baði þar sem eru flísar.
Tvær geymslur í kjallara, önnur mjög rúmgóð.
Góð sameign, stórt þurrkherbergi, þvottahús og hjóla/vagnageymsla.
Íbúðin var töluvert endurnýjuð í lok árs 2015, baðherbergi og eldhús endurnýjað, nýtt harðparket, hiti í gólfi í holi/gangi og baði. Raflagnir endurnýjaðar sem og vatnsl og frárennslislagnir þá að sögn eigenda.
Ath að myndir af íbúð eru ekki nýjar.Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is
Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















