HÚSASJÁ

Aðalstræti 26A

01-0201 · 400 Ísafirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
10 myndir

102 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1889

Byggingarár

284 m²

Lóð

Garður

Friðað

Geymsla



96 dagar á sölu

sell

36.000.000 kr

352.250 kr/m²

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu - Aðalstræti 26A Ísafirði - Íbúð 0201, fimm herbergja íbúð á 2.hæð í þríbýlishúsi í miðbæ Ísafjarðar.

Íbúðin er skráð 108 m² að stærð, þar af er sérgeymsla í kjallara um 13,3 m² og geymsla undir stiga á jarðhæð 1,3 m².

Sameiginlegur inngangur og forstofa Aðalstrætis megin á jarðhæð ásamt teppalagðum stigagangi og stigapalli á 2.hæð

Komið inn frá stigapalli inn í rúmgóða L-laga stofu og borðstofu með teppi á gólfi.

Eldhús inn af borðstofu, hvít innrétting og dúkur á gólfi.

Baðherbergi inn af eldhúsi, klósett, sturta og vaskur.

Tréstigi úr eldhúsi upp á rishæð, þar eru þrjú herbergi með teppi á gólfi, fataskápar í tveimur herbergja.

Sérgeymsla í kjallara merkt 0001 og geymsla á jarðhæð (áður salerni) merkt 0102.

Skipt var um klæðningu á húsinu í kringum 2016, áður var búið að skipta um þakjárn á húsinu. Frárennsli frá húsinu lagað 2023.Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!

Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook

Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Kort af Aðalstræti 26A

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð