HÚSASJÁ

Lágholt 10

01-0101 · 340 Stykkishólmi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

172 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1966

Byggingarár

Sérinngangur

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



395 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

407.343 kr/m²

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu afar fallegt og mikið endurnýjað einbýli á skjólsælum stað við Lágholt 10 í Stykkishólmi.   Húsið sem byggt er árið 1966 er 150 fm. steinsteypt einbýlishús á einni hæð  ásamt 21,6 fm. bílskúr byggðum árið 1970.

***ATH EIGENDUR ERU OPNIR FYRIR SKIPTUM Á FASTEIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU***

Húsið sem hefur verið mikið endurnýjað að innan skiptist í forstofu, stofu, samliggjandi sólstofu og eldhús, sjónvarpsherbergi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.

Gólfhiti er í í forstofu, stofum og eldhúsi og eru gólfefni í húsinu nýlega endurnýjuð fyrir utan svefnherbergisálmu. Flísar eru á forstofu og baðherbergi en parket á öðrum gólfum.

Eldhúsið sem nýlega hefur verið endurnýjað á mjög svo fallegan máta er opið rými og kallast á við bjartar stofurnar og mynda eina heild. Úr sólstofu er svo gengið út á skjólsælan pall og mikið gróinn garð. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu klósetti.

Raflagnir hafa verið endurnýjaðar að mestu sem og rafmagnstafla. Stení klæðning er á húsinu og er steypt bílastæði við húsið. Frárennslislagnir voru nýlega endurnýjaðar.

Hér er á ferð afar fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús sem endurnýjað hefur verið á smekklegan máta. Frábær staðsetning í grónu umhverfi á einum veðursælasta stað í Hólminum fagra.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is og Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, kristjan@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Lágholt 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu