Skólabraut 1
01-0101 · 360 Hellissandi



145 dagar á sölu
29.900.000 kr
372.818 kr/m²
NÝTT Í SÖLU - ÁSGARÐUR HELLISSANDI. LÍTIÐ HUGGULEGT EINBÝLISHÚS.
Valhöll fasteignasala, kynnir: Til sölu einbýlishúsið að Skólabraut 1 á Hellissandi. Húsið sem ber nafnið Ásgarður er á tveimur hæðum og hvor hæð er 40,1 fm alls 80,2 fm húsið allt. Efri hæðin skiptist í hol, eldhús og rúmgóða stofu. Stigi er niður á neðri hæðina og þar er rúmgóð forstofa, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. þá eru tvö herbergi á neðri hæðinni. Á baðherberginu er sturtubaðkar og flísar eru á gólfi. Eldhúsið er með góðri innréttingu með góðu skápaplássi. Borðstofan og stofan eru samliggjandi með stórum gluggum. Húsið er hitað með rafmagnsofnum. Yfir lofti hússins er gott rými sem hægt að er að vinna með td að gera þar rishæð. Gluggar á neðri hæð eru nýlegir skv, uppl, frá seljanda. Samkvæmt eiganda þá hefur húsið verið leigt út hjá airbnb og bookings, auk þess sem eigandi hefur haft það sem sumarhús. Lóðin er 1150 fm samkvæmt FMR og næg bílastæði. Húsið er á góðum stað, nálægt sjónum og mikið líf er við ströndina.
VERÐ kr 29,9 millj
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna








