Bárðarás 1
01-0101 · 360 Hellissandi



235 dagar á sölu
54.900.000 kr
402.493 kr/m²
Valhöll fasteignasala kynnir: Bárðarás 1, Hellissandi – fallegt einbýlishús á einstökum stað
Til sölu er steinsteypt einbýlishús að Bárðarás 1 á Hellissandi. Húsið er 136,4 fm að stærð, byggt árið 1968 og er á einni hæð. Það stendur á rúmgóðri hornlóð á góðum stað með fallegu umhverfi og útsýni yfir Snæfellsjökul.
Komið er inn í forstofu með fataskáp. Inn af forstofu er gert ráð fyrir gestaklósetti, en það er óklárað. Úr forstofu er gengið inn á hol sem tengir saman rými hússins. Til hægri er flísalagt eldhús og inn af því er geymsla og þvottahús með sérútgengi. Upplýsingablað frá seljanda mun fylgja söluyfirliti.
Í húsinu er rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum og fallegu útsýni til Snæfellsjökuls. Úr stofu er gengið út á um 25 fm sólpall sem snýr í suður, þar sem er heitur pottur.
Húsið býður upp á fjögur herbergi, herbergisgang og parket á gólfum í íbúðarrýmum. Í aðalherbergi eru góðir skápar. Baðherbergið er með baðkari.
Við húsið er tengi fyrir hleðslu rafmagnsbíls. Garðurinn er stór og gróinn og býður upp á mikla möguleika til útivistar og frekari mótunar. Hluti innbús getur fylgt með kaupum samkvæmt nánara samkomulagi. Innimyndir koma næstu daga.
Ásett verð: 54,9 milljónir króna.
Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
