Gilbakki 1
01-0101 · 356 Snæfellsbæ



147 dagar á sölu
64.900.000 kr
353.871 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Vorum að fá þetta fallega 183,4 fm einbýlishús á sölu. Húsið stendur við Gilbakka 1 á Arnarstapa á sunnanverðu Snæfellsnesi. Eignin er á tveimur hæðum þ.a.s hæð og kjallari. Eignin stendur á 1.188 fm lóð og er glæsilegt útsýni til fjalla og sjávar. Hér er einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt heilsárshús.
Kjallarinn er staðsteyptur og er efri hæðin úr timbri.
Efri hæðinni er skipt upp í tvær íbúðir, stúdíó og þriggja herbergja íbúð. Neðri hæðinni er skipt upp í stórt alrými með eldhúsi, snyrtingu og tvö herbergi.
Nánari lýsing:
Efri hæð:
Stúdíó: sérinngangur.
Anddyri með hengi og flísum á gófli.
Baðherbergi: Inn af anddyri er flísalagt baðherbergi með sturtu.
Stofa: Stofan er mjög björt og með fallegu útsýni.
Eldhús: Eldhús er opið inn að stofu. Lítil innrétting með eldavélasamstæðu.
Svefnloft: Frá stofu er gengið upp timburstiga í rúmgott svefnloft sem allt að fjórir geta gist, Ekki er há lofthæð á loftinu.
3ja herbergja íbúð: Sérinngangur.
Anddyri: Með hengi og flísalagt gólf.
Baðherbergi: Inn af anddyri. Flísalagt gólf, sturta og tengi fyrir þvottavél.
Gangur:Langur gangur sem tengir allar vistaverur íbúðarinnar saman.
Eldhús: Fallegt eldhús með nýlegri hvítri viðar innréttingu og góðum borðkrók.
Svefnherbergi: Tvö rúmgóð svefnherbergi. Annað þeirra með fataskáp.
Stofa: Stór og björt stofa með fallegu útsýni.Útgengt út á timburverönd til suðurs, Milliloft.
Kjallari: Sérinngangur
Alrými: Stórt alrými með eldri innréttingu.
Snyrting: Salerni, handlaug og hitakúturinn.
Tvö herbergi. Annað herbergið var nýtt sem verkstæði en hitt er notað sem herbergi.
Upplýsingar:
Arnarstapi er u.þ.b 180 km frá höfuðborgarsvæðinu og 117 km frá Borgarnesi, góðir vegir alla leið. Gilbakki 1 er staðsett við Arnarstapa og nálægt allri þjónustu sem þar er upp á að bjóða.
Arnarstapi er af mörgum talin einn fallegasti staður Íslands á sunnanverðu Snæfellsnesi. Á síðustu árum hafa orðið miklar breytingar á svæðinu frá opnun þjóðgarðsins. Öll þjónusta hefur aukist til muna að völdum eftirspurnar. Á sunnanverðu Snæfellsnesi má finna marga fallega staði til að skoða, í einstakri náttúru og gönguleiðir þeirra á milli.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














































