HÚSASJÁ

Þorsteinsgata 13

01-0101 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

136 m²

Stærð

2

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1959

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



80 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

433.407 kr/m²

Domusnova og Sjöfn Hilmarsdóttir, lögg. fasteignasali hafa í einkasölu fimm herbergja efri sérhæð í tvíbýli ásamt ónýttu rými í bílskúr sem hægt er að innrétta sem íbúð eða vinnustofu. Stór og gróinn garður með skjólgóðri timburverönd. Grunnskóli, sundlaug, íþróttasvæði og leikvöllur í göngufæri. Stutt í alla almenna þjónustu. Góð staðsetning með glæsilegu útsýni vestur á Snæfellsnes og yfir Borgarvog.

Eignin er laus og hægt að afhenda við kaupsamning

** BÓKIÐ SKOÐUN**

Pantið skoðun hjá Hrannari í síma 899 0720 eða á hrannar@domusnova.is

Þorsteinsgata 13 steinsteypt íbúðarhús klætt að utan með álklæðningu á tveimur hæðum. Í húsinu eru tveir eignarhlutar, hvor með sérinngang. Sameiginlegt þvottahús og geymsla á neðri hæð. Efri hæðin er 135,9 fm. að meðtöldum 44,2 fm. sérstæðum bílskúr. Bílskúr er ekki nýttur sem slíkur heldur rýmið hugsað til annarra nota, möguleiki er að gera þar stúdíóíbúð, heimaskrifstofu, ræktaraðstöðu eða annað sem 44,2 fm. aukarými getur boðið upp á. Innan íbúðarrýmis er forstofa, gangur, eldhús, stofa þaðan sem útgengt er á svalir, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Innra skipulagi hefur verið breytt og bætt við tveimur svefnherbergjum úr hluta rýmis sem áður var stofa, hægt er að breyta skipulagi í fyrra horf með lítilli fyrirhöfn. Innangengt er niður stiga í sameiginlegt þvottahús og geymslu. Bílskúr og steypt bílaplan tilheyrir efri hæðinni, í garði er stór timburverönd með tengi f. heitan pott og 15. fm. garðskúr.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi. Millihurð (er í bílskúr).

Gangur: Parket á gólfi.

Eldhús: Eldri innrétting með efri og neðri skápum. Uppþvottavél (fylgir með), blástursofn, helluborð og vifta. Gott skápapláss og góð vinnuaðstaða. Parket á gólfi.

Stofa: Björt stofa. Gengið út á svalir til suðurs með fallegu útsýni. Parket á gólfi.

Herbergi: Fjögur rúmgóð svefnherbergi, eitt með nýlegum stórum fataskáp. Parket á gólfi.

Baðherbergi: Hvít innrétting með handlaug, skápur, salerni, sturtuklefi með flísalögðum botn. Flísar á gólfi og veggjum.

Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús og geymsla er á neðri hæð og innangegnt niður stiga við hlið forstofu. Innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þvottasnúrur og vinnuborð. Þvottavaskur. Gluggi með opnalegu fagi. Inn í geymslu er hitastýring fyrir heitan pott. Flísar á gólfi. Stigi teppalagður.

Bílskúr: Bílskúr er 44,2 fm. og býður þetta sérrými upp á ýmsa möguleika varðandi nýtingu og skilast. Hiti, rafmagn og rennandi vatn (ótengt að hluta v. framkvæmda). Fyrir nokkrum árum var byrjað á framkvæmdum þar sem ætlunin var að breyta bílskúr í íbúð eða vinnustofu, þeim framkvæmdum er ólokið í dag. Þak á bílskúr hefur allt verið smíðað upp (skipt um burðarbita, einangrun, þakjárn), sett ný loftaklæðning, ný klæðning að utan á austuhlið bílskúrs og skipt um glugga og hurð. Eftir er að ganga frá raflögnum og tengja loftljós, klæðningarefni fylgir til að klára að klæða útveggi og lokafrágangur eftir glugga- og hurðaskipti er óklárað.

Garðskúr: 15 fm. óeinangraður garðskúr fylgir með eigninni (einangrun fylgir með).

Lóð: Húsið stendur á 705,0 fm. gróinni lóð með fallegu útsýni. Efri hæðin hefur sérafnot af steinsteyptu bílaplani fra götu að bílskúr, timburverönd og svæði fyrir aftan hús sem garðskúr stendur á.

Raflagnir endurnýjaðar 2010 og sett ný rafmagnstafla, neysluvatnslagnir í lagi og hafa verið endurnýjaðar og  frárennsli endurnýjað úr húsi í brunn 2020. Með eigninni fylgir ný svalahurð og nýjir gluggar og gler í íbúðina að mestum hluta sem og klæðningarefni á bílskúr.

Hér er um mjög áhugaverða eign að ræða á frábærum stað í Borgarnesi

Nánari upplýsingar veita:

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Kort af Þorsteinsgata 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð