HÚSASJÁ

Skúlagata 13

01-0101 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

318 m²

Stærð

4

Svefnherbergi

4

Baðherbergi

1968

Byggingarár

Garður

Svalir

Þvottahús



177 dagar á sölu

sell

89.000.000 kr

279.610 kr/m²

Nes Fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:

Skúlagata 13, 310 Borgarnesi.

Um er að ræða steypt hús á tveimur hæðum byggt 1968 á góðum stað í Borgarnesi. Eignin er nú nýtt undir rekstur Blómasetursins og skiptist í kaffihús og gjafavöruverslun á neðri hæð og gistihús í íbúð á efri hæð hússins.

Nánari lýsing:

Eignin er samtals 318.2 fm að stærð skv. skráningu FMR. Neðri hæð 0101 er 150.8 fm að stærð, skráð sem skrifstofa í fasteignaskrá. Efri hæð 0201, íbúð með sérinngangi, 167.4 fm að stærð.

Neðri hæð mhl. 0101.

Hæðin er innréttuð sem kaffihús og skiptist í afgreiðslu með aðstöðu til sölu á varningi, seturými, eldhús, salerni og veitingasal. Inn af eldhúsi er síðan þvottahús.  Úr veitingasal er síðan gengið út á rúmgóðan sólpall.

Hæðin er innréttuð með viðarklæðningu á veggjum að hluta og flísum og parket á gólfum.

Efri hæð mhl. 0201.

Steyptar tröppur eru upp á efri hæðina sem skiptist í setustofu, eldhús með ágætri innréttingu, eldavél, uppþvottavél og borðkrók, 4 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Þar af er rúmgott herbergi nýtt sem fjölskylduherbergi með sér baði.

Hæðin er mikið uppgerð með parket er á gólfum utan þess að flísar eru á gólfi í baðherbergjum. Áföst hæðinni er viðbygging, garðhús, sem nýtt er sem lager og þar innaf er 1 herbergi og salerni.

Lóðin er skemmtilega frágengin með grjóthleðslu og steyptum stéttum og sér bílastæði við íbúð á efri hæð. Klæðning á útveggjum og gluggar er komið til ára sinna.

Hér er um rúmgóða og vel staðsetta eign að ræða sem býður upp á mikla möguleika. Stutt í skóla, íþróttahús og sundlaug.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Skúlagata 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu