HÚSASJÁ

Réttarholt 6

01-0101 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

205 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1980

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



122 dagar á sölu

sell

89.000.000 kr

434.570 kr/m²

Nes fasteignasala ehf kynnir í einkasölu eignina:

Réttarholt 6, 310 Borgarnes.

Um er að ræða rúmgott og mikið endurnýjað steinsteypt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum stakstæðum, bílskúr, á vinsælum og rólegum stað í Borgarnesi.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Heildarstærð fasteignarinnar er 204,8 fm skv. skráningu HMS, þar af er bílskúrinn 50,2 fm.

Húsið skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, hol, svefnherbergisálmu sem á eru 4 svefnherbergi og baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og þvottahús með geymslu þar innaf.  Góður sólpallur á lóðnni. Steypt stétt og malarborið plan.

Nánari lýsing

Anddyri: Flísar á gólfi og gólfhiti. Fatahengi.

Gestasnyrting: Flísar á gólfi, lítil innrétting og gólfhiti.

Hol: Er samliggjandi stofu, rúmgott með parket á gólfi.

Stofa og borðstofa: Rúmgóð og björt. Arinn er í stofu sem setur mikinn svip á rýmið. Gengið er úr borðstofu út á rúmgóða timburverönd.

Eldhús: Parket á gólfi. Góð innrétting með helluborði, bakarofn í vinnuhæð og uppþvottavél.  Eldhúsið og tæki allt endurnýjað 2017.

Svefnálma: Parketlagður gangur.

Svefnherbergi: Öll með parket á gólfum. Rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi.

Baðherbergi: Flísar á gólfi og fibo baðplötur á veggjum. Vegghengt salerni og innrétting. Gólfhiti og flísalögð walk-in sturta.  Baðherbergi og tæki endurnýjað 2017.

Þvottahús: Flísar á gólfi og gólfhiti. Gengið er úr þvottahúsi út á baklóðina og  þar er gert ráð fyrir heitum potti.

Geymsla: Er inn af þvottahúsi, hillur og málað gólf.

Bílskúr: Mjög rúmgóður. 2 góðar innaksturshurðir, skápar og vinnuborð. Málað gólf vatn hiti og rafmagn. Gengt úr bílskúr út á bílaplan milli húsa.

Lóðin er skjólsæl með með veglegum sólpalli og skjólveggjum.

Húsið er mikið endurnýað.  Múrskemmdir á hús og bílskúr er viðgert og eignin öll máluð.  Öll gólfefni voru endurnýjuð 2017 og gólfhiti settur í votrými og forstofu.  Eldhús og böð voru endurnýjuð 2017 og skipt um innihurðir (yfirfelldar). Nýr þakassi á bílskúr.  Þá eru öll vatnsinntök í húsið endurnýjuð og hluti af ofnum og ofnalögnum.

Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Nes fasteignasala tekur ekki umsýslugjald af kaupendum.

Kostnaður kaupanda:

Stimpilgjald skv. 5. gr. laga nr. 138/2013 um stimpilgjald, 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% við fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald kr. 2.700,- á hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá.

Engin umsýsluþóknun.

Kort af Réttarholt 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð