HÚSASJÁ

Kveldúlfsgata 28

01-0202 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

64 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1977

Byggingarár

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



45 dagar á sölu

sell

37.900.000 kr

595.912 kr/m²

Heimili fasteignasala og Sigríður Lind fasteignasali kynna rúmgóða og fallega 2ja herbergja, mikið endurnýjaða íbúð á 2. hæð við Kveldúlfsgötu 28.  Íbúðin er vel staðsett miðsvæðis í bænum, stutt í verslun og þjónustu og stórbrotin náttúran allt í kring. Íbúðin er 63,6 fm og skiptist í anddyri, baðherbergi, stofu/borðstofu, eldhús og svefnherbergi. Stórar suður svalir.  Góð geymsla í kjallara.

*** Bókið skoðun HÉR ***

Nánari lýsing:

Forstofa: komið er inn í rúmgóða forstofu/hol með góðum fataskáp.

Eldhús: Nýlega endurnýjuð eldhúsinnrétting og tæki. Góður borðkrókur. Vínilparket á gólfi.

Stofa: er björt og rúmgóð með ágætu útsýni. Útgengt á suðursvalir. Vínilparket á gólfi.

Svefnherbergi: Gott herbergi með nýlegum skápum yfir heilan vegg. Vínilparket á gólfi.

Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Sturtuklefi. Nett skúffuinnrétting undir handlaug. Upphengt salerni. Tengi fyrir þvottavél.

Sameign:  Flísalagt anddyri og teppalagður stigagangur. Sérgeymsla er í kjallara, ásamt þvottahúsi og hjólageymslu.

Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð nýlega m.a gólfiefni, innihurðar, fataskápar, eldhúsinnrétting og tæki, Innrétting á baði, salerni, handlaug og sturtuklefi. Tenglar og slökkvarar endurnýjaðir. Neysluvatnslagnir í húsinu hafa verið endurnýjaðar nýlega.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali sigridur.lind@heimili.is / 8994703

Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á heimili@heimili.is og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.

Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Kort af Kveldúlfsgata 28

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23