HÚSASJÁ

Berugata 16

01-0101 · 310 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
27 myndir

244 m²

Stærð

5

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

1976

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



23 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

327.862 kr/m²

Helgafell fasteignasala ehf. og Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna 243,7 fm. raðhús við Berugötu í Borgarnesi. Fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi og bílskúr.  Frábært útsýni. Stórt bílastæði framan við húsið. Rafhleðlustöð fyrir rafbíl í innkeyrslu.

SMELLTU HÉR TIL AÐ OPNA SÖLUYFIRLIT

EFRI HÆÐIN:

Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi.

Gestasalerni inn af forstofu - flísar gólfi og upp á hálfa veggi - skápur undir vaski.

Forstofuherbergi (1) - plastparket á gólfi.

Stofa / Borðstofa - mjög björt og rúmgóð - plastparket á gólfi - útgengt á stórar svalir - frábært útsýni.

Eldhús - korkflísar á gólfi - þokkaleg innrétting - flísar milli efri og neðri skápa.

Þvottahús - inn af eldhúsi og búr inn af þvottahúsi.

NEÐRI HÆÐIN:

Flísalagður stigi á neðri hæð - stórt rými með harðparketi þegar komið er niður stiga - hiti í gólfi á alrými neðri hæðar.

Hjónaherbergi (2)- parket á gólfi - rúmgóður fataskápar.

Herbergi (3)- parket á gólfi.

Herbergi (4)- parket á gólfi.

Baðherbergi - tekið í gegn árið 2019 - rúmgott - flísar í hólf og gólf - baðkar - góð hlaðin sturta - upphengt salerni - handklæðaofn - góð innrétting.

Herbergi (5) - harðparket á herbergisgangi - flísar á herbergi - notað sem líkamsræktaraðstaða í dag - baðherbergi inn af herbergi (5) - vegghengt salerni - sturtuklefi - flísar á gólfi - vaskur - skápur undir vaski - fataherbergi og geymsla m. hitagrind.

Sólpallur á baklóð - útgengt af neðri hæð - lóð í ágætis rækt - frábært útsýni.

Bílskúr - 3ja fasa rafmagn - heitt og kalt vatn - gömul bílskúrshurð - gengið inn á hlið bílskúrs - rafhleðslustöð fyrir rafbíl við bílskúrshurð.

Framkvæmdir við húsið síðustu ár:

Árið 2019 var stóra baðherbergi neðri hæðar tekið í gegn og hiti settur í gólf á alrými neðri hæðar ásamt því að einhverjum gluggum á neðri hæð var skipt út. Árið 2023 var nýtt járn sett á þakið og það hækkað upp. Endurnýjað var það timbur sem þurfti. Ekki var skipt um einangrun þaksins þar sem hún var í lagi. Árið 2024 var skipt út hitagrind og nokkra hitakrana á ofnum. Þá var einnig sett upp rafhleðslustöð framan við bílskúr og rafmagnstafla yfirfarin. Árið 2025 lögðu Veitur nýtt vatnsinntak í húsið og þá var settur nýr jarðvegur í heimkeyrslu.

Allar frekari upplýsingar veitir Gunnar Sv. Friðriksson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 842 2217 / gunnar@helgafellfasteignasala.is----------------------------------------------------------

Heimasíða Helgafells fasteignasölu

Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Kort af Berugata 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð