HÚSASJÁ

Kiðárbotnar 15

01-0101 · 320 Reykholti í Borgarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

45 m²

Stærð

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1980

Byggingarár

Sérinngangur

Þvottahús

Heitur pottur



270 dagar á sölu

sell

31.900.000 kr

702.643 kr/m²

Lögheimili og Guðrún Hulda Ólafsdóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu:

Notalegan sumarbústað á frábærri lóð við Kiðárbotan 15 í sumardvalarparadísarinnar í Húsafelli.   Bústaðurinn er 45,4fm og stendur á 5.000 fm. lóð.

Bústaðurinn er fullbúinn með hitaveitu, köldu vatni og rafmagni.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa með plastparketi á gólfi.

Svefnherbergi eru tvö annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með kojum.  Plastparket á gólfi.

Baðherbergi:  eldri innrétting og tæki og sturtuklefa.

Stofa/borðstofa: bjart rými með miklum gluggum og aukinni lofthæð.

Eldhús með parket, hvít innrétting í opnu rými með stofu.

Stofa með parket opið rými með eldhúsi og útgangur á verönd.

Lóð:  Kynnið ykkur lóðarréttindi.

Húsgögn fylgja:  Öll húsgögn sem voru til staðar í sýningu geta fylgt kaupunum.  Myndir og aðrir persónulegir munir fylgja þó ekki.

Einstaklega rólegur og góður staður í Húsafellslandi stutt frá hinni ýmsu þjónustu.

Göngufæri frá sundlaug og leiksvæði fyrir börn, tjaldsvæði fyrir gesti, golfvöll, hótel með veitingarstað.

Viðhald:

2025 Ný hitagrind vegna hitaveitu

2026 Ný hitastýring fyrir heitan pott í lóð.

Afhending:  Samkomulag/við kaupsamning.

Fjarlægð frá Reykjavík er ca 130 kílómetrar. Öll helsta þjónusta er á staðnum, veitingastaður, strandblakvöllur, sundlaug og þjónustumiðstöð. Á svæðinu eru sérlega fallegar gönguleiðir og stutt í náttúruperlur eins og Langjökul, Arnarvatnsheiði, Hraunfossa, Barnafossa og einnig er á staðnum 9 holu glæsilegur golfvöllur. Á svæðinu er stórt tjaldstæði með aðgangi að sturtum, salerni, þvottahúsi og rafmagni. Húsafell er paradís fyrir sumarbústaðaeigendur jafn á sumrin og veturnar. Stutt upp á jökul, góðar gönguleiðir, sundlaug, golfvöllur, veitingarstaður, verslun o.fl. Þjónustustig stöðugt að aukast á svæðinu.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Hulda Ólafsdóttir

Lögmaður og löggiltur fasteignasali

Sími 845-7445 eða á netfangi gudrun@logheimili.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skila. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár og til seljenda.  Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga nr. 40/2002 um fasteignakaup  og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalar sem starfa á Lögheimili eignamiðlun fasteignasölu benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Kort af Kiðárbotnar 15

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð