Indriðastaðir 29
01-0101 · 311 Borgarnesi



30 dagar á sölu
29.000.000 kr
527.273 kr/m²
Berg fasteignasala kynnir:
Afar vel staðsettur sumarbústaður á vel gróinni eignarlóð í landi Indriðastaða í Skorradal. Sumarhúsið er nr. 29 í landi Indriðastaða, 42+13 = 55 fm. en búið er að byggja við húsið sólskála 10 fm. ekki er búið að skrá inn þessa stækkun á eigninni hjá fasteignamatinu. Á lóðinni er búið að byggja lítið 7 fm. gestahús og síðan er nýlegt hús sem notað er sem áhaldageymsla.( ca. 10 fm.) ekki skráð á fasteignamati. Umhverfis húsið er sólpallur með heitum potti (hitaveita) og skjólveggir. Snýr í suður.
Nánari lýsing: Komið er í anddyri með fatahengi. Til hægri er lítið svefnherbergi með kojum. Til hliðar en annað svefnherbergi. Partket á gólfum. Baðherbergið er nýlega endurnýjað. Nýjar veggklæðningar, rafmagn, hreinlætistæki og pípulagnir. Dúkflísar á gólfi. Útgengt á sólpall úr baðherbergi með heitum potti sem snýr í suður. Inn af baðherberginu er þvottahús, nýjar veggklæðningar, pípulagnir og rafmagn. Dúkflísar á gólfi. Stofan er björt og rúmgóð. Opið í eldhús úr stofu. Úr stofu er útgengt í sólskála. Svefnloft (skriðloft) ca. 20 fm. er yfir húsinu að hluta.
Á lóðinni ery tvö hús, annað gestahús, 7 fm. en hitta geymsla og áhaldahús, 10 fm. Bæði óskráð á fasteignamati. Lóðin er afar vel gróin birkitrjám og runnum. Mjög fallegt umhverfi og skjólgott. Frábær aðstaða fyrir börnin að leika sér. Lokað hlið er inn á lóðina. Fallegt útsýni til Skorradalsvatns og Skarðsheiðar. Stutt er í sundlaug, (Hreppslaug) ca. 5 km.
Allt innbú (án persónulegra muna) fylgja eigninni ef það hentar kaupendum. Bústaðurinn er laus við kaupsamning.
Allar nánari uppl. hjá Pétri s. 897-0047 eða petur@berg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















