HÚSASJÁ

Ásvegur 4

01-0101 · 311 Borgarnesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

199 m²

Stærð

4

Herbergi

6

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1960

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Auka íbúð



242 dagar á sölu

sell

85.000.000 kr

427.996 kr/m²

Fallegt einbýlishús m. auka íbúð Á EINSTÖKUM ÚTSÝNISSTAÐ á Hvanneyri í Borgarbyggð. - Tveggja hæða einbýlishús, nú skipt í tvær íbúðir ásamt nýjum 40,8 fm bílskúr.

Mikil eftirspurn er eftir leiguhúsnæði bæði langtíma og skammtíma leigu. Lítið mál að breyta bílskúr í íbúð ef vill, lagnir eru til staðar. Frábær fjárfestingarkostur og sem frístundahús. Einnig er hægt að opna á milli hæða, stigi er til staðar og nota sem eina eign.

Húsinu er nú skipt í tvo matshluta og er ein íbúð á hvorri hæð með sameiginlegu þvottahúsi á neðri hæð ásamt geymslum.

Góð staðsetning og glæsilegt útsýni. Skv. lóðarleigusamningi frá 1998 er lóðin, sem er í eigu ríkissjóðs, 1.342 fermetrar. Stór og opinn garður.

Efri hæð - timbur, forskalað og klætt að utan. Forstofa ný flísalögð. Stofa og tvö herbergi og gangur með nýju parketi.  Eldhús er flísalagt, snyrtileg innrétting, og granít á borðum.  Búr með hilum inn af eldhúsi. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og máluðum veggjum, sturta. Óskráð háaloft er fyrir ofan sem nýtist sem geymsla.

Neðri hæð - hlaðnir veggir/forskalað og klætt að utan. Tvö herbergi og gangur parketlögð. Eldhús er flísalagt góð eldhúsinnrétting. Stofa er björt og rúmgóð. Baðherbergi, sturta. Sameiginlegt þvottahús er á neðri hæðinni, gólf málað. Geymsla á neðri hæðinni.

Glæsilegt útsýni hvert sem litið er.

Leikskóli á staðnum og Grunnskóli uppí 4. bekk, stutt í Borgarnes og fl.

Nýr bílskúr 40,8 fm. Bílskúrinn verður klæddur með áli, hurð með rafmagnsopnun.  Möguleiki er að breyta bílskúr í íbúð þar sem allar lagnir eru til staðar.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason fasteignasali as@hofdi.is, Gsm 895-3000.

Kort af Ásvegur 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð