HÚSASJÁ

Grundarbraut 14

01-0101 · 355 Ólafsvík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

77 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1944

Byggingarár

Garður



268 dagar á sölu

sell

29.900.000 kr

386.305 kr/m²

Valhöll fasteignasala kynnir: Fallegt parhús 77,4 fm á einni hæð að Grundarbraut nr.14 - 355 Ólafsvík .

Húsið er tvíbýli og norðurendinn er til sölu. Íbúðin skiptist í eldhús og samliggjnadi stofu og tvö herbergi og annað með skápum. Baðherbergið er með sturtu og þar er tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Eigninn er mikið endurnýjuð á síðastliðnum tveimur árum. Sem dæmi um endurnýjun, samkvæmt upplýsingum frá seljanda, þá er nýr gólfhiti, túpa, og gegnumstreymishitari. Þá eru neysluvatnslagnir, rafmagn, rafmagnstafla nýtt og ný hurð út í garð. Það er nýtt þak, ný loftaeinangrun úr steinull, gólfefni, eldhúsinnrétting og baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf.

Útidyrahurð þarfnast endurbóta. Gluggar sem snúa í norður voru endurnýjaðir af fyrri eiganda auk baðherbergisglugga og þrjá sem eru í einu herberginu. Eitt herbergi er með upprunalegum glugga. Íbúðin gæti verið laus við kaupsamning.

VERÐ: Kr 29,900,000 millj.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Grundarbraut 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu