HÚSASJÁ

Ennisbraut 35

01-0101 · 355 Ólafsvík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

148 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1940

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla



17 dagar á sölu

sell

34.900.000 kr

236.610 kr/m²

Valhöll fasteignasala ehf kynnir Ennisbraut 35 í Ólafsvík. Þetta er steypt einbýlishús á tveimur hæðum og ber nafnið Sæberg. Íbúðarhæðin sem mælist 84,8 fm skiptist i flísalagða forstofu og innaf henni er flísalagt baðherbergi með baðkari og þá er þar rými fyrir þvottavél og þurrkara. Til vinstri úr forstofu er hol og úr því er farið til tveggja herbergja sem eru sitt hvoru megin. Úr holinu er gengið inn í eldhús og samliggjandi rúmgóða stofu. Í holinu, herbergjum, stofu og eldhhúsi er gott parket ef gerðinni  kwikset.

Húsið er nýlega tekið í gegn eftir tjón sem á því varð á sl ári. Skipt var um nær öll gólfefni á hæðinni, eldhúsinnréttingin sem og tæki eru líka nýleg. Þá er ný hurð út í garðinn og innihurðar eru nýlegar. Þá eru nýir rafmagnsofnar í húsinu sem og hitakútur. Úr húsinu er óskert og einstakt útsýni út á sjóinn. Upplýsingablað seljanda liggur fyrir.

Kjallarinn mælist 38,4 fm og er nýtt sem góð geymsla og bílskúrinn mælist 27,9 fm. Komið er að endurnýjun á hurð og hurðabúnaði. Húsið mælist með bílskúrnum alls 147,5 fm og lóðin mælist 1050 fm. Ásett verð kr 34,9 millj.

Allar nánari upplýsingar og milligöngu um skoðun annast Pétur Steinar Jóhannsson Aðstoðarmaður fasteignasala í Ólafsvík í síma 893-4718 psj@simnet.is Allar almennar upplýsingar veitir Ingólfur Gissurarsson löggiltur fasteignasali á Valhöll sími 588-4477.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Ennisbraut 35

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16