HÚSASJÁ

Geirakot 1

01-0101 · 356 Snæfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
13 myndir

92 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1970

Byggingarár

3010 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



6 dagar á sölu

sell

85.000.000 kr

290.996 kr/m²

Eignatorg kynnir: Nýtt á skrá - Geirakot 1, Snæfellsbæ. Um er að ræða einbýlishús með tvöföldum bílskúr á einstaklega fallegum útsýnisstað. Húsið er á einni hæð og mjög mikið endurnýjað og við það stór bílskúr. Húsið er kynt með öflugri varmadælu. Ljósleiðari komin inn og tengdur. 3ja fasa rafmagn. Íbúðarhúsið er steinsteypt á einni hæð og hefur verið endurnýjað verulega á undanförnum árum. M.a. hefur húsið verið einangrað og klætt með viðhaldsfríu undirkerfi og álklæðningu í bland við bandsagaða timburklæðningu, skipt um timbur í þaki og nýr þakdúkur settur á, skipt um alla glugga og útihurðir, allar lagnir endurnýjaðar í húsinu á árunum 2012-2018, eldhús og baðherbergi endurnýjuð og byggð rúmgóð 40 fm sólstofa með hita í gólfi og mætti nýta sem svefnherbergi.

Heimreið með bundnu slitlagi. Einungis 6 km eru til Ólafsvíkur þar sem er öll helsta verslun og þjónusta.

Stærð eignarinnar er eftirfarandi:

Íbúðarhús byggt 1970, talið vera nærri 200 fm.

Bílskúr byggður 1985, skráður 60,1 fm en talin vera nærri 100 fm.

Lóðin er eignarlóð, skráð 3.010. fm.

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í forstofu, rúmgott eldhús, rúmgóða og bjarta stofu, sólstofu, bakinngangur og gengt þaðan inn í bílskúr, þvottahús, snyrtingu, svefnherbergisgang, baðherbergi, fjögur svefnherbergi. Frá þvottahúsinu er gengt út á rúmgóðan sólpall með skjólveggjum, þar sem er heitur rafmagnspottur.

Hiti er í öllum gólfum. Vatn í vatn varmadæla með innbyggðum heitavatnskút.

Bílskúrinn er rúmgóður, tvöfaldur, en óeinangraður. Bílskúrinn er með tveimur nýjum innkeyrsluhurðum, endurnýjuðum gluggum og endurnýjuðu þaki. Í bílskúrnum er sundlaug sem í dag er nýtt sem geymsla.

Gott kalt vatn úr lind inni á landi jarðarinnar.

Allar nánari upplýsingar veitir Björgvin Guðjónsson löggiltur fasteignasali í síma 510-3500 / 615-1020 eða bjorgvin@eignatorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0 - 1,8%. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Kort af Geirakot 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu