HÚSASJÁ

Einigrund 27

01-0101 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
52 myndir

121 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1988

Byggingarár

237 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



30 dagar á sölu

sell

86.300.000 kr

711.459 kr/m²

***EINIGRUND 27 - AKRANESI***

Domusnova fasteignasala og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynnir: Einstaklega glæsilegt og mikið endurnýjað 121,3 gm raðhús á 2.hæðum ásamt  rúmgóðri aflokaðri  suður verönd.með geymsluskúr. Einnig er aflokaður bakgarður í norður. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu sem og borðstofu. hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús með gestasalerni innaf. Nýtanlegir fermetrar eru mun fleiri en skráningin segir til um þar sem að efri hæðin er að hluta til undir súð.

Helstu endurbæturHúsið málað að utan árið 2020.Þakjárn endurnýjað 2019.Eldhús endurnýjað 2018.Gólfhiti i alrými

2021 -2022 var eftirfarandi endurnýjaðBaðherbergi frá A-ÖVatnslagnir endurnýjaðar.Nýjar innihurðar.Nýtt harðparket og parketlistar.Nýjar flísar á forstofu, þvottahús, gestasalerni og baðherbergi.Ídráttarör fyrir heitan pott.Nýjir fataskápar.Sérniðnar gardínurNýr varmaskiptir.

1.hæð:

Forstofa með flísalögðu gólfi og fataskáp með speglahurðum.

Eldhús: Parket á gólfi, nýleg innrétting sem og tæki. Mikið skápapláss. Innbyggð uppþvottavél. Gólfhiti.

Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðsstofa með parket á gólfi og gólfhita. Útgengt út á stóra hellulagða afgirta suðurverönd.

Þvottahús /geymsla með flísalögðu gólfi , tengi fyrir þvottavél og þurrkara,  Útgengt út á baklóð úr þvottahúsi.

Steyptur stigi upp á 2.hæð með kókosteppi á gólfi.

2.hæð:

Hol með harðparketi á gólfi.

Hjónaherbergið er rúmgott með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp. Góð loftæð.

Barnaherbergi með harðparketi á gólfi og hvítum fataskáp.

Barnaherbergi með harðparketi á gólfi.

Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum, "walk in" sturta, falleg innrétting með ljúflokunum á skúffum og fallegum spegli með led lýsingu, og upphengdu salerni.

Um er að ræða mjög svo fallegt raðhús á góðum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og íþróttamannvirki. Rólegur botnlangi.

Nánari upplýsingar veitir:

Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali ragga@domusnova.is  / sími 861-4644

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr.3.800,- fyrir hvert skjal.  Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.  Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Einigrund 27

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð