HÚSASJÁ

Sunnubraut 8

01-0101 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
55 myndir

235 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1949

Byggingarár

549 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



236 dagar á sölu

sell

94.500.000 kr

401.615 kr/m²

Domusnova Akranesi og Soffía Sóley lögg.fasteignasali s. 846-4144 kynna:

EINBÝLISHÚS MEÐ 75,8 FM. BÍLGEYMSLU.

Sunnubraut 8, Akranesi:   159,5 fm. einbýlishús með 75,8 fm. bílskúr    3-4 svefnherbergi

Lýsing eignar:

Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum.  Á neðri hæð er forstofa, gangur, 3 svefnherbergi, þvottaherbergi, baðherbergi.  Tréstigi upp á efri hæð þar sem er stofa, borðstofa, eldhús, búr og vinnuaðstaða. Húsið er múrað með Sto-efni.

Aðalinngangur, flísar á gólfi.  Inngangur í gegnum þvottaherbergi, innrétting, hengi, flísar á gólfi (gólfhitalögn), skóskápur.

Samfellt nýlegt parket á gangi, 2 herbergjum og sjónvarpsherbergi.  Úr sjónvarpsherbergi eru dyr út á skjólgóða verönd (hurð endurn. 2022)  gólf flísalagt fyrir framan dyrnar (gólfhitalögn) .

3 svefnherbergi, skápar í öllum.  Parket á hjónaherbergi.  Mögul. að breyta sjónv.herb. í  fjórða svefnherbergið með þvi að setja upp harmonikkuhurð sem er til.

Geymslur undir timburstiga uppá efri hæðina og 3 aðrar geymslur undir súð.

Efri hæðin var standsett 1988, byggð að hluta til ofaná neðri hæðina og settur kvistur

Öll hæðin myndar stórt alrými þar sem eru 6 þakgluggar sem veita góðri birtu í rýmið.  Hæðin skiptist í rúmgóða stofu, borðstofu og eldhús. Vinnuaðstaða og búr innaf eldhúsi.

Eldhúsinnrétting er hvít með beiki, nýr bakarofn, uppþvottavél getur fylgt, búr innaf eldhúsi með innréttingu.

Íbúðarhús endurn. á síðustu árum:

Allt rafmagn á efri hæð 1988 (þegar hæðin var innréttuð) Á neðri hæð er allt rafmagn endurn á baði, þvottaherbergi og sjónvarpsherbergi, annarsstaðar að hluta. Þakjárn endurn. ca. 2020.  Kantur að hluta (eftir þörfum) 2025.  Ofnalagnir endurnýjaðar.  Gler endurnýjað á n.h. og gluggar yfirfarnir 2025 og það sama á efri hæð 2023. Neysluvatnslagnir endurýjaðar ca 1997.  Fráveitulagnir endurnýjaðar innanhúss og útfyrir útvegg.  Sér lögn fyrir affall útfyrir útvegg.

Bílgeymsla: 75,8 fm.   heitt og kalt vatn, lagt fyrir wc, nýtt upphengt klósett fylgir. Húsið er hlaðið að hluta, viðbyggingin er úr forsteyptum einingum (ca.2000) en á sama tíma var skipt um þakjárn. Hiti í gólfi viðbyggingar.  Loft einangrað, niðurfall. Rekkar fylgja. Göngudyr.  Stóar innkeyrsludyr, 2,90m h x 3 m br. og   2,0m h x 2,45 br.

Í garðinum stendur bjálkakofi/geymsla ca. 15 fm., einangrað þak og gólf.

Nánari upplýsingar veitir:

Soffía Sóley Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali / s.846 4144 / soffia@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Sunnubraut 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð