Laugarbraut 25
01-0201 · 300 Akranesi



209 dagar á sölu
69.900.000 kr
440.731 kr/m²
*** AFHENDING VIÐ KAUPSAMNING ***
Fasteignasalan Bær og Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali kynna: Efri sérhæð í tvíbýli með sér inngangi við Laugarbraut 25, 300 Akranes. Um er að ræða 135,9 fm íbúð á annarri hæð ásamt tæplega 23 fm bílskúr, staðsett innarlega í botnlangagötu, alls 158,6 fm. Fallegt útsýni úr stofu og eldhúsi til sjávar. Eignin hefur fengið töluvert viðhald og endurnýjun á síðustu árum t.d. var þak yfirfarið og málað sumarið 2024, viðgerð og málun á húsi 2021, skolplagnir endurnýjaðar 2025, baðherbergi endurnýjað o.fl. Um er að ræða vel staðsett hús innarlega í rólegri botnlangagötu. Stutt er í miðbæinn, leik- og grunnskóla ásamt íþróttastarfsemi.
Nánari lýsing:
Komið er inn í flísalagða forstofu með fatahengi. Frá forstofu er teppalagður stigi upp á efri hæð. Stigapallur efri hæðar er flísalagður, þar eru rúmgóðir fataskápar. Búið er að koma upp þvottaaðstöðu með snyrtilegum hætti á stigapalli efri hæðar. Rúmgott eldhús með stórri eldhúsinnréttingu með viðaráferð og ljósgráum borðplötum. Rúmgóð samliggjandi stofa / borðstofa með útgengi út á svalir. Baðherbergi var endurnýjað 2018 er með dökkri innréttingu, walk inn sturta með dökkum flísum, upphengt salerni, handklæðaofn og ljósar flísar á gólfi, stór gluggi með opnanlegu fagi. Á svefnherbergisgangi er harðparket á gólfi, 3 rúmgóð herbergi með skápum. Í kjallara er sér inngangur í sér geymslu eignar. Tæplega 23 fm bílskúr (holsteinn) með nýlegri hurð og fjarstýrðum hurðaropnara. Á gólfum eignar er harðparket á stofu / borðstofu, herbergisgangi og herbergjum en flísar á forstofu, stigapalli, eldhúsi og baðherbergi.
Um er að ræða rúmgóða sér hæð í rólegu umhverfi með helstu þjónustu í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar gefur Páll Guðjónsson lögg. fasteignasali í síma 699 4994 eða á netfangi pall@fasteignasalan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













