HÚSASJÁ

Garðabraut 18

02-0301 · 300 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
31 myndir

102 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1971

Byggingarár

3636 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

51.900.000 kr

509.823 kr/m²

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg.fasteignasali kynna nýja eign í sölu; Bjarta og vel skipulagða 3-4 herbergja íbúð á 3ju og efstu hæð með gluggum á 3 vegu og stórfenglegu útsýni á 3 vegu. Eignin er skráð 101,8 fm. skv. Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðn sjálf 86,3 fm. og tvöföld geymsla 15,5 fm.

Íbúðin skiptist í opið hol, eldhús og stofu, gang, 2 herbergi og baðherbergi, auk geymslunnar sem er rúmgóð.

Nánari lýsing; Komið er inn í opið hol sem opnast inn í alrými með eldhúsi, í  holi/hluta stofunnar eru góðir fataskápar.

Eldhúsið er rúmgott og opið með nýlegri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, laus eyja fylgir með opinn borðkrókur og bekkur undir norður glugga þaðan sem er frábært útsýni yfir Akrafjallið er með aðstöðu fyrir 2-3 til að sitja við. Í holinu til móts við eldhúsið er góður búrskápur sem fellur vel inn í rýmið.

Stofan er rúmgóð með gluggum í suður og óhindrað útsýni út á sjóinn og Langasand, gengið er út á suður svalir frá stofunni. Auðvelt væri að setja upp vegg í hluta stofu (sýnt á teikningu) og fá þriðja svefnherbergið þar.

Gangur/hol er með 2 herbergjum og baðhernbergi. Hjónaherbergi er rúmgott með gluggum á tvo vegu og opnu fatahengi.Barnaherbergi er nú hálfopið, þ.e.a.s. ekki er hurð í hurðarstæði en það veitir birtu inn í alrýmið, auðvelt að loka þessu með léttum vegg og hurð.

Baðherbergi er flísalagt með baðkari, handlaug og salerni, þar er tengt fyrir þvottavél (sameiginlegt þvottahús í sameign).

Íbúðin er afar björt og fallegt, nýlegt harðparket á gólfum fyrir utan baðherbergi og gluggar sem tryggja birtu og frábært útsýni á þrjá vegu.

Sameign er afar snyrtileg, nýlegt teppi á stigagangi og flestir gluggar endurnýjaðir. Í sameign er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi, vagna og hjólageymsla og sérgeymslur íbúðanna.

Stór og vegleg geymsla (15,5 fm), með parketi á gólfi fylgir þessari íbúð, hún er hálf skipt (veggur nær ca1,5 fm. inn í rýmið sem býður upp á ýmsa möguleika en tveir góðir gluggar þar sem annar er opnanlegur gefa möguleika á ýmis konar nýtingu fyrir utan geymslu notkun.

Frábær staðsetningu, stutt í skóla Grundaskóli, leikskóla Vallarsel og íþróttamannvirki Akraneshöll -Náttúrlaugin Guðlaug á Langasandi í nokkurra metra fjarlægð.

Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is

Frekari upplýsingar um viðhald og endurnýjun á húsi og íbúð;

2014; Stofnlagnir og neysluvatnslagnir upp í allar íbúðir endurnýjaðar

2016; Drenlögn til staðar og drendúkur kringum húsi endurnýjaður

2001; (ca) Þakjárn endurnýnað, rennur hafa verið endurnýjaðar (óvíst um ártal)

Gaflar hússins og suðurhlið klætt með sléttri steniklæðningu.

Bílastæði malbikað og settar upp hleðslustövðar fyrir eigendur íbúða

2005; (ca)  Gluggar og gler á suðurhlið og göflum endurnýjað

2019-2020; Neðsti hluti hússins sprunguviðgerður og málaður 2020.

2020; Stigagangur teppalagður og málaður

2022; Þakjárn og túður yfirfarnar, skipt um túður sem voru orðnar ljótar.

2025; Skipt um glugga á norðurhlið og húsið múrviðgert (nú tilbúið til málningar)

Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á s.l. fimm árum:

Nýtt rafmagn í íbúð og ljós, gólfefni, eldhúsinnrétting

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kort af Garðabraut 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31
Garðabraut 18, 02-0301 | Húsasjá