Höfðabraut 3
01-0201 · 300 Akranesi



317 dagar á sölu
59.900.000 kr
443.047 kr/m²
Falleg miðhæð ásamt rúmgóðum bílskúr í 3-býli að Höfðabraut 3 á Akranesi. Eignin er alls 135,2 fm. og skiptist í íbúð á hæð 103,5 fm. og 31,7 fm. bílskúr (endaskúr í 3ja skúra lengju). Hæðin skiptist í stórt miðjuhol, tvær stofur, eldhús, baðherbergi, sérþvottahús, geymslu og tvö svefnherbergi (3 skv. teikningu). Inndregnar suður-svalir.
Nánari lýsing: Komið er á rúmgott parketlagt hol með fataskráp. Af því er gengið í allar vistarverur íbúðarinnar. Strax á vinstri hönd er geymsla með glugga. Stofurnar eru tvær parketlagðar og bjartar, með tveimur gluggum til suðurs og einum til vesturs (innri hluti stofunnar er herbergi skv. teikningu - auðvelt að setja upp vegg að nýju). Eldhúsið er parketlagt, með snyrtilegri hvítlakkaðri innréttingu og nýlegum vinnuborðum, raftækjum, vaski og blöndunartækjum. Aðstaða fyrir litla uppþvottavél í innréttingu. Baðherbergið er nýstandsett, flísalagt gólf með hita, innrétting, vegghengt wc, "walk in" sturta og handklæðaofn. Gluggi á baðherbergi. Rúmgott sérþvottahús með glugga, þvottavélum í vinnuhæð og skolvaski. Hjónaherbergið er parketlagt með góðum skápum og þaðan er útgangur á inndregnar suður-svalir. Barnaherbergið er parketlagt. Bílskúrinn er rúmgóður og með gluggum, kalt vatn og rafmagn, hurðaropnari, hitun með affalli, afstúkuð geymsla í enda.
Annað: Húsið er klætt áli á tvær hliðar. Vatnslagnir íbúðar eru endurnýjaðar að hluta. Frárennslislagnir íbúðar (stammi) eru endurnýjaðar. Allt parket er nýlegt harðparket. Sérhiti og ljósleiðari kominn.
Falleg eign á rólegum og góðum stað við nýja miðbæinn, stutt á útivistarsvæðið við Langasand, sundlaug, íþróttamannvirki og alla helstu verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Björn Þorri Viktorsson hrl. og lögg. fasteignasali, í síma 894-7070, tölvupóstur bjorn@midborg.is.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















