HÚSASJÁ

Iðndalur 10

01-0101 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
16 myndir

803 m²

Stærð

2

Baðherbergi

1984

Byggingarár

5840 m²

Lóð

Geymsla

Þvottahús



454 dagar á sölu

sell

290.000.000 kr

361.146 kr/m²

Borgir s. 588-2030 kynna:

Rúmgóð og glæsileg eign með fjölbreytta möguleika – íbúð, verkstæði og lager á einum stað

Um er að ræða rúmlega 800 fm hús, upphaflega byggt fyrir verksmiðjuframleiðslu. Í gegnum tíðina hefur eignin tekið breytingum og býður hún í dag upp á afar áhugaverða blöndu af vandaðri og rúmgóðri íbúð í fremri hluta hússins og verkstæðis- og lageraðstöðu í bakhluta.

Á steyptu plani á baklóð eru jafnframt timburbyggt geymsluhús ásamt jarðföstum geymslugámum, sem eykur enn notagildi eignarinnar.

Húsið er byggt úr forsteyptum einingum, bæði útveggir og þak, sem tryggir mikið burðarþol. Slík bygging býður upp á möguleika á frekari uppbyggingu, til dæmis að bæta við hæð ofan á núverandi hús. Mikil lofthæð, um 3,6 metrar, gefur rýminu einstakt yfirbragð og opnar á fjölbreytta nýtingu.

Söluyfrlit

Eining 01-01-01 – Íbúð (335,8 fm)

Í dag er þessi eining nýtt sem mjög vönduð og glæsileg íbúð. Hér var áður veitingastaður með fullbúnu framleiðslueldhúsi og veitingasal, en rýmið hefur verið umbreytt í heimili sem sameinar rými, þægindi og stíl.

Íbúðin skiptist í:

Eldhús með góðu vinnurými

Stóran og opinn sal sem nýtist sem stofur

3 svefnherbergi

2 baðherbergi

Saunu – því hvers vegna ekki?

Stórar geymslur innan íbúðar

Tvær rúmgóðar verandir setja punktinn yfir i-ið; önnur á vesturhlið með útgengi frá eldhúsi og hin á austurhlið frá stofum. Inngangur er bæði á norðurhlið og frá hliðarveröndum, sem eykur aðgengi og sveigjanleika.

Eining 02-01-01 – Verkstæði og lager (467,2 fm)

Bakhluti hússins hýsir rúmgóða verkstæðis- og lageraðstöðu með mikilli lofthæð. Þar eru sterkar hillur sem ná hátt upp í loft og bjóða upp á gott skipulag fyrir tæki, tól og varahluti.

Einnig er í rýminu:

Skrifstofa

Starfsmannaaðstaða

Innkeyrsludyr eru á suðurhlið hússins og inngangsdyr á vesturhlið, sem gerir aðgengi einstaklega þægilegt fyrir rekstur.

Upplýsingar gefur Ægir s. 896-8030 s. 896-8030 eða aegir@borgir.is

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 70.000 mvsk.

Kort af Iðndalur 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu