HÚSASJÁ

Hvassahraun 8

01-0101 · 191 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
12 myndir

45 m²

Stærð

2

Baðherbergi

2020

Byggingarár

4590 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



294 dagar á sölu

sell

38.900.000 kr

860.619 kr/m²

Fasteignaland fasteignasala kynnir til sölu.

Fullbúin sumarhús með mikla möguleika við Hvassahraun 8, Vogum.

Samkvæmt fasteignaskrá er um ræða tvö falleg hús byggð 2020 sem hvort um sig eru 22,6 fm. ásamt 6 fm. sólpalli.

Einnig er aukahús um 15 fm sem verið er að stækka. Húsið er óskráð sem auðvelt er að breyta.

Fallegt útsýni og góð staðsetning við útjaðar höfuðborgarsvæðisins.

Eignirnar skiptast í bjart opið rými með svefnaðstöðu, eldhús og salerni með sturtu. Stórt bílaplan er fyrir framan. Húsin eru skráð á öllum helstu bókunarsíðum og fær góð meðmæli viðskiptavina, möguleiki kaupanda er að yfirtaka það og fylgi þannig kaupum.

Nánari upplýsingar veitia

Fasteignaland fasteignasala í s 599-6700 og á fasteignaland@fasteignaland.is

Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209 og á hordur@fasteignaland.is

Nánari lýsing:

Húsin tvö eru á steyptum sökkli og eru klædd að innan með harðpressuðum gifsplötum og timburklædd/panel að utan með brunavörn.

Baðherbergi er með loftræstingu og tengi fyrir þvottavél.  Eigin borhola er komin á lóðina og með nægu vatni. Búið er að tengja allar lagnir, rafmagn og setja upp rotþró. Stjórnstöð til staðar sem stýrir öllum hita, rafmagni og vatni.

Aðalhúsin tvö eru fullbúin öllu sem þarf til útleigu og hefur verið í góðum rekstri með góðar leigutekjur.  Möguleiki er að yfirtaka reksturinn og bókunarkerfi.  Allt er til staðar, þ.e. svefnsófi og sófaborð, flatskjár, kommóða, eldhúsborð og stólar og eldhús með ísskáp, helluborði og örbylgjuofni.  Fallegt og slitsterkt vínilparket er á gólfum og góð hljóðeinangrun.  Vatn er upphitað og rafmagnsofnar til staðar.  Ljósleiðari er til staðar úti í götu en undanfarið hefur verið notast við 5G net.  Auðvelt er að stækka húsin og breyta þeim í íbúðarhús.

Aukahúsið/aðstöðuhús er um 15 fm. að stærð sem verið er að stækka og full klára.

Húsin standa á 4.590 fm. leigulóð og heimilt er að byggja allt að 154 fm. til viðbótar svo ýmsir möguleikar eru fyrir hendi, sem dæmi 116 fm. aðalhús og 40 fm. aukahús, eins og byggingarreglugerð heimilar. Gistileyfi liggur fyrir.

Kort af Hvassahraun 8

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð