HÚSASJÁ

Akurgerði 16

01-0101 · 190 Vogum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

230 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1978

Byggingarár

Sérinngangur

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



414 dagar á sölu

sell

93.000.000 kr

403.997 kr/m²

Eignasala kynnir:

Akurgerði 16, 190 Vogum

5 herbergja einbýlishús ( 3 svefnherbergi og 2 stofur) á einni hæð með bílskúr og tveimur sólpöllum á lóð. Óskert sjávarútsýni.

Birt stærð eignar er 230,2 m2, þar af er hús skráð 163,2m2 og bílskúr 67m2.

Nánari lýsing eignar:

Andyri með nýjum flísum og fataskáp.

Geymsla/herbergi með nýju harðparekti og góðum skápum

Baðherbergi með nýjum flísum á gólfi, með flísalögðum sturtubotni og nýrri innréttingu. Vegghengt salerni og handklæðaofn.

Þvottaaðstaða inná baðherbergi.

3 svefnherbergi með nýju harðparketi.  Úr hjónaherbergi er útgengi á lóð.

Eldhús með nýjum svörtum viðarinnréttingum,ný eldhústæki, plastlagðar borðplötur. Flísar á gólfum.

Stór stofa með flisum á gólfi.  Sólstofa með flísum og útgengi úr sólstofu á tvo sólpalla.

Mjög rúmgóður bílskúr með hita, rafmagni og lýsingu. Góð lofthæð.

Ýmis frágangur vegna endurbóta ekki að fullu lokið, vantar innihurðir, rafmagn ekki að fullu frágengið.

ATH. eignin er í eigu dánarbús og þekkja erfingjar ekki ástanda eignar umfram það sem sjá má við almenna sjónskoðun

og kemur fram í ástandsskoðun sem framkvæmd var fyrir dánarbúið árið 2024, sem áhugasamir eru hvattir til að kynna sér.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Hafnargötu 90a í síma 420-6070 eða eignasala@eignasala.is og julli@eignasala.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 43.400 með vsk.

Kort af Akurgerði 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð