HÚSASJÁ

Valbraut 6

01-0101 · 250 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
38 myndir

168 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1973

Byggingarár

850 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



129 dagar á sölu

sell

76.500.000 kr

454.816 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu VALBRAUT 6, 250 Garður. Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með stakstæðum bílskúr við botnlanga í grónu hverfi í Garði, Suðurnesjabæ.

Stutt í alla almenna þjónustu og útivist. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Eignin skiptist í íbúð 133.8 m² og bílskúr 34.4 m², samtals 168.2 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag eignar: Anddyri, gangur, eldhús og búr, stofa og borðstofa, fjögur herbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og geymsla. Bílskúr og geymsla.

Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |

Nánari lýsing:

Anddyri, flísar á gólfi, tvöfaldur fataskápur, innangengt er úr anddyri í stofu og borðstofu, herbergi IV og gestasnyrtingu.

Eldhús, korkur á gólfi, upprunaleg innrétting, eldavél, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur fylgt), borðkrókur.

Innangengt er frá eldhúsi i stofu og borðstofu, búr og þvottahús.

Búr, korkur á gólfi, hillur.

Stofa og borðstofa, parket á gólfi, útgengt er frá stofu út á verönd til suð-/vesturs, tvöfaldur skápur við inngang í eldhús

Gangur, parket á gólfi.

Herbergi I, hjónaherbergi, fimmfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.

Herbergi II, tvöfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.

Herbergi III, tvöfaldur fataskápur, dúkur á gólfi.

Herbergi IV, forstofuherbergi, dúkur á gólfi, laus tvöfaldur fataskápur (fylgir).

Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, veggskápar, salerni og baðkar, gluggi.

Gestasnyrting, flísar á gólfi, handlaug og salerni, gluggi.

Þvottahús, flísar á gólfi, vinnuborð, stálvaskur í borði, pláss fyrir tvær vélar. Útgengt er úr þvottahúsi í port á milli íbúðarhúss og bílskúrs.

Geymsla, inn af þvottahúsi, málað gólf, fastar hillur, gluggi.

Húsinu hefur verið breytt að innanverðu frá upprunalegum teikningum.

Bílskúr, geymsla er innst í bílskúr, bílskúrshurðaopnari en engin fjarstýring. Gönguhurð á hlið að þvottahúsinngangi.

Heitt og kalt vatn og rafmagn.

Valbraut 6 er timburhús á einni hæð, klætt að utan. Bárujárn á þaki, timburgluggar og hurðar. Bílskúr er stakstæður, timburskúr klæddur að utan, einhalla þak.

Lóð er gróin, runnar að mestu á lóðarmörkum.  Verönd í garði er að hluta til steypt og að hluta til timbur. Steypt bílaplan í aðkomu og fyrir framan bílskúr.

Lóð er leigulóð, 850,0 m² að stærð.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 209-5802. Valbraut 6, Suðurnesjabær.

Stærð: Íbúð 133.8 m². Bílskúr 34.4m² Samtals 168.2 m².

Brunabótamat: 77.250.000 kr.

Fasteignamat: 67.700.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 1973. Bílskúr 1973.

Byggingarefni: Timbur.

Landeignanúmer 130709. Íbúðarhúsalóð 850.0 m².

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Valbraut 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð