HÚSASJÁ

Suðurgata 12

01-0201 · 245 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

120 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1947

Byggingarár

830 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Þvottahús



57 dagar á sölu

sell

67.000.000 kr

558.333 kr/m²

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Suðurgötu 12, 245 Sandgerði.

Um er að ræða 120 fm. 5 herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi við Suðurgötu í Sandgerði.

Staðsetningin er góð, í göngufæri við grunnskóla, sundlaug og íþróttahús.

Nánari lýsing:

Komið er inn um anddyri með flísum á gólfi, þar er rúmgott þvottahús.

Svefnherbergin eru 4 talsins, öll með parket á gólfi.

Eldhús hefur flísar á gólfi, góð innrétting með miklu skápaplássi og eldhúseyja með helluborði.

Borðstofa og stofa eru í opnu björtu rými með parket á gólfi, útgengi er frá stofu út á svalir.

Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum, snyrtileg innrétting, skápaspeglar, handklæðaofn og baðkar með sturtuhaus.

Helstu endurbætur síðustu ár samkvæmt seljanda:

Skipt um alla glugga

Endurnýjað flísar og innréttingu á baðherbergi.

Klæðning að framan.

Nýlegt parket.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%

ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.

3.800 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar

á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Kort af Suðurgata 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu