HÚSASJÁ

Heiðarbraut 6

01-0101 · 245 Suðurnesjabæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

143 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1981

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



20 dagar á sölu

sell

63.000.000 kr

439.944 kr/m²

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Heiðarbraut 6, 245 Suðurnesjabæ.

Um er að ræða virkilega vel skipulagt og bjart 143,2 m2 raðhús, þar af er 30,4 m2 bílgeymsla á góðum stað í Sandgerði.

Eignin er laus við kaupsamning.

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gott hol og góð stofa, rúmgott eldhús með eyju sem hægt er að sitja við, þvottahús og geymsla. Góð lóð að aftan sem snýr í  vestur. Gólfefni eru flísar og harðparket.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri: Anddyri með flísum á gólfi ásamt fataskáp.

Þvottahús: Innaf anddyri er þvottahús og geymsla með flísum á gólfi.

Hol: Stórt hol með parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa: Stofa með parketi á gólfi og útgengt út á afgirta baklóð.

Eldhús: Eldhús með parketi á gólfi, stór innréttingu með eyju sem skilur af eldhús og borðstofu.

Svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Hjónaherbergi er með útgengt út á baklóð.

Baðherbergi: Baðherbergið er nýuppgert með flísum á gólfi og veggjum, stór sturta, hvít innrétting og upphengt klósett, hiti er í gólfi.

Bílgeymsla: Bílgeymslan er um 30,4 m2 með góðri aksturshurð og tveim gönguhurðum að framan og aftan. Stórt milliloft og herbergi í enda skúrs.

Afgirt lóð er kringum húsið að aftan, stéttar og plan eru steyptar.

Frábær staðsetning, í rólegri götu, mjög nálægt leikskóla og grunnskóla.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50 eða á netfanginu es@es.is og í síma 420-4050

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%

ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.

3.800 af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar

á heimasíðum lánastofnana.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.

Kort af Heiðarbraut 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð