Bæjarsker
01-0101 · 246 Suðurnesjabæ



193 dagar á sölu
76.900.000 kr
454.492 kr/m²
Fasteignasalan Borg kynnir fasteignina Bæjarsker N-Lyngsel í Sandgerði. Eign sem hentar einkar vel í útleigu eða Airbnb.
Einbýlishúsið sem stendur í útjaðri Sandgerðisbæjar á rólegum stað er skráð 169,2 fm að stærð en að sögn eigenda þá er það stærra, (nær 200 fm þar sem milligangur er ekki inni í skráðum fermetrafjölda). Húsið stendur á 4.200 fm leigulóð og um 300 fm sólpallur er í kringum húsið og stórt bílastæði. Stutt í alla þjónustu, leikskóla, skóla, íþróttamiðstöð og sundlaug. 10 mínútna akstur er á flugvöllinn og 40 mínútna akstur til Reykjavíkur. Þegar núverandi eigendur keyptu húsið voru tvær íbúðir í húsinu en nú er búið að opna á milli þeirra. Auðvelt er að breyta því aftur í fyrra horf.
Nánari lýsing eignar:
Anddyrið er með harðparkett á gólfi og eldhúsi (anddyrið er óskráð).
Gangur: stór gangur sem tengir saman íbúðirnar tvær sem áður voru í húsinu. Harðparketi á gólfi, góðir skápar og hurð út á verönd.
Herbergi: Sex stór herbergi með harðparketi á gólfi, skápar í einu og hurð út á verönd úr einu.
Baðherbergi: Tvö baðherbergi með flísum á gólfi, stór innrétting er í öðru og lítil í hinu. Bæði baðherbergin eru með sturtuklefa.
Þvottahús: Stórt þvottahús með flísum á gólfi, góð innrétting með góðu geymsluplássi. Tengi fyrir þvottavél er inni í geymslurými í öðrum enda hússins.
Eldhús: Stórt eldhús með stórri innréttingu.
Stofa: Björt og stór stofa með harðparketi á gólfi.
Borðstofa: Björt borðstofa með harðparketi á gólfi, hurð er út á verönd sem er allt í kringum húsið.
Bílastæði: Stórt malbikað bílastæði sem rúmar yfir tíu bíla.
Hér er um að ræða mjög skemmtilega eign sem býður upp á mikla möguleika, t.d. sem lítið gistiheimili, útleigueiningar, Airbnb eða sem einbýlishús á rólegum stað í útjaðri bæjarins. Einnig væri hægt að leigja út aðra einingu hússins og búa í hinni. Gott aðgengi fyrir fatlaða og engir þröskuldar milli herbergja. Hægt væri að færa húsið í fyrra horf þegar öðru megin var íbúð með 1-2 svefnherbergjum og hinum megin íbúð með 4-5 svefnherbergjum. Gott útsýni er í dag frá húsinu, fallegt sólarlag og norðurljós.
Nánari upplýsingar veita:
Ingimar Ingimarsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 8618458, tölvupóstur ingimar@fastborg.is.
Börkur Hrafnsson Lögg. fasteignasali og lögmaður í síma 892-4944. tölvupóstur borkur@fastborg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því skorað á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir








































